Erlent

Tala látinna hækkar í fimm­tán

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Alríkislögregla Bandaríkjanna birti þessa mynd af Shamsud-Din Jabbar.
Alríkislögregla Bandaríkjanna birti þessa mynd af Shamsud-Din Jabbar. AP/Gerald Herbert

Tala látinna eftir árás í New Orleans í morgun þar sem maður ók bifreið sinni inn í mannfjölda hefur nú hækkað. Áður var greint frá að tíu hafi látist en nú eru 15 látnir og að minnsta kosti 35 aðrir særðir.

Fréttastofa BBC greinir frá. Ekið var á fólk sem var saman komið til að fagna áramótunum á Bourbon-stræti í New Orleans þar sem er að finna fjölda vinsælla veitinga- og skemmtistaða. Atvikið átti sér stað á horni Bourbon-strætis og Canal-strætis um klukkan 3:15 að staðartíma, eða um 9:15 að íslenskum tíma.

Það var 42 ára bandarískur ríkisborgari að nafni Shamsud-Din Jabbar sem ók bifreiðinni en fáni hryðjuverkasamtaka sem kennir sig við íslamskt ríki fannst í bílnum. Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) hefur nú gert opinbera mynd af Din-Jabbar sem var skotinn til bana af lögreglu á vettvangi. 

Din-Jabbar hafði verið handtekinn tvisvar áður í Texas-ríki, árið 2002 og svo árið 2005.

Greint var frá því fyrr í dag að tvær heimagerðar sprengjur hafi fundist í New Orleans skammt frá borginni. Telur lögreglan því að Din-Jabbar hafi ekki verið einn að verki. Einnig fundust minniháttar sprengjur og skotvopn í bifreiðinni.

FBI lokaði í kvöld svæði í norðurhluta Houston borgar í Texas-ríki sem verið er að sinna „löggæslu störfum“. Biðlað er til fólks að leggja ekki leið sína að svæðinu í nokkra klukkutíma á meðan sérþjálfaðir lögreglumenn sinna störfum sínum.

Ekki hafa verið gefnar frekari upplýsingar um hvað sé verið að vinna að í Houston. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×