Erlent

Óskaði Trump til hamingju og í­trekaði frið­sam­leg valda­skipti

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Harris hélt ræðu fyrir framan stuðningsfólk sitt í kvöld. Hún hafði áður hringt í Trump og óskað honum til hamingju.
Harris hélt ræðu fyrir framan stuðningsfólk sitt í kvöld. Hún hafði áður hringt í Trump og óskað honum til hamingju. getty

Kamala Harris játaði ósigur í forsetakosningum Bandaríkjunum og þakkaði stuðningsfólki sínu í ávarpi í kvöld. Hún hringdi í Donald Trump næsta Bandaríkjaforseta og tjáði honum að hún muni sjá til þess að valdaskiptin verði friðsamleg.

Kamala sleppti því að ávarpa stuðningsmenn sína í nótt þegar ljóst varð að hún yrði ekki næsti Bandaríkjaforseti, heldur mótframbjóðandi hennar Donald Trump. Síðan þá hefur staða Harris í kosningunum einungis versnað og nú er ljóst að hún mun ekki fá fleiri atkvæði en Trump, nokkuð sem Hillary Clinton tókst þrátt fyrir ósigur árið 2016.

Harris hélt ræðu við Howard háskóla í Washington í kvöld. Þar stappaði hún stálinu í stuðningsmenn sína. 

„Á sama tíma og ég játa ósigur í þessum kosningum, þá mun ég aldrei játa ósigur í baráttunni sem hélt þessari baráttu gangandi,“ sagði Harris.

„Baráttan fyrir frelsi, fyrir tækifærum, fyrir sanngirni og reisn allra. Baráttan fyrir þeirri hugsjón sem býr í hjarta okkkar, hugsjón sem sýnir Bandaríkin í blóma. Það er barátta sem ég mun aldrei gefa upp á bátinn.“

„Baráttan fyrir frelsi verður verður erfiðisvinna. En eins og ég segi alltaf, okkur líkar við erfiðisvinnu. Erfiðisvinna er góð vinna, getur verið góð skemmtileg vinna. Baráttan fyrir landinu okkar er alltaf þess virði,“ sagði Harris einnig. 

Hún beindi orðum sínum sérstaklega að ungu stuðningsfólki og ræddi réttinn til þungunarrofs.

„Stundum tekur baráttan tíma, en það þýðir ekki að við munum ekki vinna. Það sem skiptir mestu máli er að gefast ekki upp í því að gera heiminn betri. Þið hafið völd og ekki hlusta á fólk þegar það segir að eitthvað sé ómögulegt því það hefur ekki verið gert hingað til.“

Fleiri bandamennn Harris hafa tjáð sig, til dæmis fyrrverandi samherji Trump og varaforseti Mike Pence á samfélagsmiðlinum X. Hann óskaði Trump til hamingju. 

„Við munum áfram biðja fyrir þeim sem eru í valdastöðu og ég hvet hvern Bandaríkjamann til þess að fylgja okkur í því að biðja fyrir næsta forseta, varaforseta og kjörnum embættismönnum á hverju sviði. Guð blessi Bandaríkin,“ skrifaði Pence.

Barack Obama fyrrverandi Bandaríkjaforseti óskaði Trump til hamingju með niðurstöðuna sem hann sagði vera vissulega ekki þá sem hann hann hafi óskað sér. 

„En það að búa við lýðræði snýst um að viðurkenna að okkar sjónarhorn verður ekki alltaf fyrir valinu, og að viðurkenna friðsamleg valdaskipti,“ skrifaði Obama.

„Í landi sem er jafn stórt og fjölbreytilegt og okkar, munum við ekki alltaf sjá allt sömu augum. En til að framfarir eigi sér stað verðum við að geta boðið fram traust og góðvild - jafnvel til þeirra sem við erum mjög ósammála. Þannig höfum við komist svona langt, og þannig munum við halda áfram að byggja land sem er sanngjarnara og réttlátara, með meira jafnrétti og meira frelsi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×