Erlent

Ís­lenski listinn ein­stakur og krefjist sér­stakrar skoðunar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bjarni Benediktsson tók við sem utanríkisráðherra í október í fyrra.
Bjarni Benediktsson tók við sem utanríkisráðherra í október í fyrra. Vísir/vilhelm

Vinna þriggja manna sendinefndar utanríkisráðuneytisins við að koma dvalarleyfishöfum með fjölskyldusameiningu frá Gaza tekur tíma og ómögulegt að segja hvenær henni lýkur. Ástæðan er sú að enginn íslenskur ríkisborgari er á lista íslenskra stjórnvalda.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins. Þar segir að nefndin hafi undanfarið verið að störfum í Egyptalandi til að greiða fyrir för dvalarleyfishafa með fjölskyldusameiningu frá Gaza. Sendinefndin hafi átt í góðu samstarfi við fulltrúa egypskra, ísraelskra og norrænna stjórnvalda á svæðinu.

Verkefnið hafi meðal annars falist í úrlausn praktískra atriða við mögulega fólksflutninga, afhendingu lista dvalarleyfishafa til viðeigandi aðila og samskiptum við fulltrúa fyrrnefndra stjórnvalda.

Bent er á að önnur norræn ríki hafi undanfarnar vikur komið ríkisborgurum, og í einhverjum tilvikum dvalarleyfishöfum, yfir landamærin. Hafi þau því getað veitt íslensku sendinefndinni mikilvægar leiðbeiningar og aðstoð í þessum efnum.

„Önnur Norðurlönd annast þó ekki framkvæmd slíkra fólksflutninga fyrir Íslands hönd, enda snýr slík aðstoð þeirra aðeins að íslenskum ríkisborgurum - en enginn íslenskur ríkisborgari er á Gaza.“

Í tilkynningunni segir að um einstakt og umfangsmikið verkefni sé að ræða.

„Fyrir liggur að stjórnvöld munu eingöngu vinna eftir diplómatískum leiðum. Fulltrúar stjórnvalda hafa þannig fylgt öllum ferlum sem stofnanir í Egyptalandi og Ísrael fara fram á,“ segir í tilkynningunni.

Þannig komi ekki til greina að greiða fé undir borðið til að auðvelda fyrir vinnslu málsins.

„Í samskiptum við ísraelsk stjórnvöld hefur komið fram að listi íslenskra stjórnvalda sé einstakur fyrir þær sakir að þar sé engan íslenskan ríkisborgara að finna og engan með tvöfalt ríkisfang, heldur eingöngu dvalarleyfishafa. Af þessari ástæðu megi gera ráð fyrir að málið þarfnist sérstakrar skoðunar af þeirra hálfu.“

Þetta sé í samræmi við það sem fram hafi komið í máli íslenskra stjórnvalda um að verkefnið sé einstakt hvað framangreint varðar, en ekki síður þann hlutfallslega fjölda sem hér er um að ræða.

„Líkt og af þessu má ráða liggur ekki fyrir hvernig endanleg tímalína málsins verður,“ segir ráðuneytið og boðar frekari upplýsingar á vef ráðuneytisins eftir því sem málinu vindur fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×