Erlent

Framhjól Boeing 757 féll af flug­vélinni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hjólið féll af vélinni skömmu fyrir flugtak. Mynd er úr safni og sýnir vél Delta á alþjóðaflugvelli í Brussel.
Hjólið féll af vélinni skömmu fyrir flugtak. Mynd er úr safni og sýnir vél Delta á alþjóðaflugvelli í Brussel. Nicolas Economou/Getty Images

Framhjól á Boeing 757 farþegaþotu í eigu bandaríska flugfélagsins Delta féll af þotunni á alþjóðaflugvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum á laugardag skömmu fyrir ætlað flugtak.

Í umfjöllun Reuters kemur fram að engan hafi sakað vegna þessa. Hjólið hafi dottið af og rúllað í burtu. Hundrað áttatíu og fjórir farþegar voru um borð í flugvélinni sem fljúga átti til Bogota í Kólumbíu.

Miðillinn segir forsvarsmenn Boeing ekki vilja tjá sig um málið. Þess í stað hafi þeir beint spurningum til flugfélagsins. Bandarísk flugmálayfirvöld, FAA, eru með málið til rannsóknar.

Fjöldi lausra skrúfa í flugvélum Alaska Airlines

Málið kemur á óheppilegum tíma fyrir bandaríska flugvélaframleiðandann. Nýlega féll hurð af annarri tegund vélar úr smiðju framleiðandans, Boeing 737 Max 9 flugvél í eigu Alaska Airlines, í miðri flugferð. Eftir það voru flugvélar 171 flgvél af þessari gerð kyrrsettar í Bandaríkjunum.

Það teygði anga sína einnig hingað til lands en forsvarsmenn Icelandair sem eiga fjórar Boeing flugvélar af þessari gerðu settu sig í samband við flugvélaframleiðandann. Í ljós kom að ekki er sami búnaður til staðar í flugvélum Icelandair sem þurfti því ekki að grípa til ráðstafana.

Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hefur nú eftir Ben Minicucci að við rannsókn á kyrrsettum flugvélum AlaskaAirlines hefði komið í ljós að skrúfubiltar hefðu verið lausir í „mörgum“ flugvélanna. Þá segja forsvarsmenn United flugfélagsins það sama.

„Ég er ekki bara pirraður og vonsvikinn,“ hefur bandaríska sjónvarpsstöðin eftir forstjóranum. „Ég er reiður. Þetta gerðist fyrir Alaska Airlines. Þetta gerðist fyrir gestina okkar og okkar fólk. Og krafa mín til Boeing er sú að þeir umbreyti sínum gæðaferlum.“

Fram kemur í umfjöllun NBC að allar flugvélar af þessari gerð í Bandaríkjunum séu enn kyrrsettar og áfram til rannsóknar. Ekki sé ljóst á þessari stundu hvenær flugvélarnar fái að fara aftur í loftið.

Alaska Airlines er það flugfélag sem á flestar flugvélar af þessari gerð og hefur það haft töluverðar afleiðingar í för með sér á flugáætlanir félagsins. Þá segist forstjórinn opinn fyrir því að félagið muni í framtíðinni frekar versla flugvélar af aðalkeppinauti Boeing, Airbus.

Umfjöllun NBC sjónvarpsstöðvarinnar má horfa á hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×