Elvar og félagar töpuðu toppslagnum Smári Jökull Jónsson skrifar 13. desember 2023 19:33 Elvar hefur verið að spila vel með PAOK í Meistaradeildinni. Vísir/Getty Elvar Már Friðriksson og félagar hans í gríska liðinu PAOK mættu Hapoel Jerusalem í Meistaradeildinni í körfuknattleik í kvöld. Leikurinn fór fram í Serbíu.
Fyrir leikinn í kvöld voru liðin efst og jöfn í riðlinum en bæði höfðu þau unnið þrjá sigra í fjórum fyrstu leikjunum. Í kvöld var því barist um toppsæti riðilsins. Leikurinn var jafn og spennandi í fyrri hálfleik og að honum loknum leiddi ísraelska liðið með þremur stigum. Staðan þá 33-30 og sóknirnar augljóslega ekki í aðalhlutverki í Belgrad. Í þriðja leikhluta náðu leikmenn Hapoel hins vegar yfirhöndinni í leiknum. Þeir lokuðu á sóknarleik PAOK og unnu leikhlutan 21-10. Staðan 54-40 fyrir lokafjórðunginn. Þar bitu gestirnir frá sér undir lokin. Þeim tókst jafnt og þétt að minnka muninn og minnkaði Elvar hann í fimm stig í stöðunni 61-56 þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir. PAOK fékk tækifæri til að minnka muninn enn frekar en töpuðu boltanum og fengu þriggja stiga körfu í bakið. Sá átta stiga munur var of stór fyrir PAOK að vinna upp og lið Hapoel sigldi sigrinum í höfn. Lokatölur 71-61 og ísraelska liðið því efst í riðlinum þegar ein umferð er eftir af riðlakeppninni. Elvar stýrði leik PAOK í kvöld. Hann skoraði sjö stig, tók fjögur fráköst og gaf sjö stoðsendingar.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira