Körfubolti

Hilmar Smári: Mjög stoltur af mínum mönnum

Hilmar Smári Henningsson hafði hægt um sig í fyrri hálfleik í kvöld en, eins og Stjarnan í heild, sprakk út í þeim seinni þegar KR-ingar voru lagði af velli í þriðja leik átta liða úrslitum Bónus deildar karla. Stjarnan vann seinni hálfleikinn 51-29 og skoraði Hilmar 17 stig í leiknum.

Körfubolti

„Galið“ að Stjörnu­menn spili sig sem fórnar­lömb

Jakob Örn Sigurðar­son, þjálfari KR, gefur lítið fyrir gagn­rýni þjálfara Stjörnunnar á dóm­gæsluna í öðrum leik liðanna sem endaði með sigri KR. Hann telur það engin áhrif munu hafa að Garðbæingar spili sig sem fórnar­lamb. Þeir brjóti ítrekað af sér, væli svo og tuði. Leikur þrjú í ein­vígi liðanna fer fram í kvöld.

Körfubolti

Grinda­vík sópaði Val í sumar­frí

Grindavík vann 72-90 sigur gegn Val og þar með 3-0 sigur í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna. Grindvíkingar halda áfram í undanúrslit en Valskonur eru komnar í sumarfrí.

Körfubolti

Martin úr leik í Meistara­deildinni

Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin eru úr leik í Meistaradeildinni í körfubolta. Framlengingu þurfti til að fella þá úr leik en 85-88 tap gegn Unicaja varð niðurstaðan að lokum.

Körfubolti

Vatnsbyssum beint að Elvari eftir 28 stiga sýningu

Íslendingar hafa fengið að kynnast því vel hve stórkostlegur Elvar Már Friðriksson getur verið á körfuboltavellinum og í dag fékk pólska liðið hans, Anwil Wloclawek, að njóta góðs af því. Hann var svo rennbleyttur í leikslok í tilefni dagsins.

Körfubolti

Nokkrir tæpir í Grinda­vík sem „tala skít“

Njarðvík og Grindavík mætast í leik tvö í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í Icemar-höllinni í Njarðvík í kvöld. Þjálfari Njarðvík vonast til að sínir menn haldi haus og endurtekning verði ekki á slagsmálum líkt og sáust í fyrsta leik.

Körfubolti

Jón Axel stoðsendingahæstur í mikil­vægum sigri

Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta, var stoðsendingahæsti leikmaður vallarins er lið hans San Pablo vann gífurlega mikilvægan sigur gegn Gran Canaria í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 95-109, fjórtán stiga sigur San Pablo

Körfubolti