Hann er leiðtogi Izz al-Din al-Qassam-flokksins, herskás arms Hamas-samtakanna, og skipulagði árásina sem átti sér stað síðsatliðinn laugardag og hefur orsakað stríðsátökin sem ríkt hafa í Ísrael og á Gasaströndinni síðan.
Franski ríkismiðillinn France 24 fjallar um sögu Deif. Þar segir að í ljósi atburða laugardagsins sé ljóst að Ísraelsmenn vilji Deif feigan, og það meira en nokkru sinni fyrr. En á sama tíma þykir líklegt að frægðarljómi hans á Gasaströndinni fari vaxandi.
Arfleiðin tryggð
„Með þessari aðgerð, sem er sú best heppnaða í sögu palestínskrar andspyrnusögu, hefur hann tryggt að arfleið sín verði í manna minnum um ókomna tíð. Nú getur hann misstigið sig. Ísrael getur myrt hann úr því sem komið er,“ er haft eftir Omri Brinner, sérfræðingi í málefnum Miðausturlanda.
Brinner útskýrir að Deif hefur hlotið viðurnefnið „Maðurinn með níu líf“ vegna þess hve vel hann hafi komið sér undan ísraelskum stjórnvöldum um áratugaskeið.

Hann hefur verið skilgreindur sem hryðjuverkamaður af Bandaríkjunum frá árinu 2015, og verið eftirlýstur af Ísraelsríki í þrjátíu ár, en hann er sagður hafa oft og mörgum sinnum ógnað þjóðaröryggi landsins á þeim tíma.
„Árásargirni gagnvart Ísrael helst yfirleitt í hendur við lágar lífslíkur. Það er hreint út sagt ótrúlegt að hann hafi haldið sér á lífi eins lengi og raunin er,“ segir Jacob Eriksson, sérfræðingur í málefnum Ísraels og Palestínu.
Lemstraður eftir árás Ísraels
Ástæðan fyrir þessu óvænta langlífi Mohammed Deif felst í því hversu vel honum hefur tekist að vera í felum. Til að mynda er fullyrt í grein France 24 að einungis sé til ein ljósmynd af Deif sem hefur litið dagsins ljós. Og sú mynd er tuttugu ára gömul.
Hann hefur þó ekki alltaf sloppið óhultur. Deif er sagður hafa misst sjón, handlegg og fótlegg eftir árás Ísraelsmanna árið 2006.

Þá liggur ekki fyrir hvert raunverulegt nafn hans er, en France 24 útskýrir að Deif þýði í raun og veru gestur.
„Það er tilvísun í að hann eyðir aldrei meira en einni nótt á sama stað. Hann er alltaf á flakki til að forðast Ísraelsmenn,“ segir Eriksson.
Óljós ævi
Aðrar staðreyndir um ævi Deif eru á reiki, en því hefur til að mynda verið haldið fram að hann hafi fæðst á sjöunda áratug síðustu aldar í flóttamannabúðum á Gasaströndinni.
Í lok níunda áratugarins hafi hann gengið til liðs við Hamas-samtökin. Hann hafi skipulagt sjálfsmorðssprengjuárás á tíunda áratugnum og í kjölfar morðsins á Yahya Ayyash, sem var einn leiðtoga Hamas, hafi Deif orðið að mikilvægum hlekk innan samtakanna.
Sjö mánaða gamall sonur Deif, Ali, og eiginkona hans voru myrt í árás Ísraelsmanna árið 2014. Jarðarför sonarins vakti mikla athygli sökum fréttaljósmynda sem sýndu þegar gengið var með lík barnsins um götur Gasa.
Býr ekki á lúxushóteli
Mohammed Deif hefur það orð á sér að vilja einungis notast við hernaðarlegar lausnir. Brinner segir að það hafi aukið vinsældir hans á Gasaströndinni. Skoðanakönnun sem gerð hafi verið 2014 hafi bent til þess að hann væri vinsælli en helstu leiðtogar Hamas-samtakanna.
Þar spili jafnframt inn í að hann búi á Gasaströndinni, sem er eitthvað sem aðrir leiðtogar Hamas eru ekki þekktir fyrir. Þvert á móti hafi sumir þeirra verið sakaðir um að stýra aðgerðum samtakana frá „lúxushótelum í Katar“.