Herlegheitin verða einnig í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi frá klukkan 08:45 í fyrramálið þegar fulltrúar allra herdeilda breska hersins stilla sér upp fyrir skrúðgönguna frá Buckingham höll að Westminster Abbey dómkirkjunni þar sem Karl III verður krýndur konungur. Þetta verður fyrsta krýningin frá því Elísabet II móðir Karls var krýnd árið 1953 þá aðeins 26 ára gömul.
Karl er hins vegar 74 ára og hefur enginn verið erfðaprins lengur en hann í sögu konungsveldisins. Búist er við að hundruð þúsunda manna fylgist með athöfninni á götum út og á skjám í þremur skemmtigörðum borgarinnar. Það má því reikna með miklu álagi á almenningssamgöngur í Lundúnum á morgun og samgöngukerfi landsins almennt. Að því tilefni sendu Karl og Kamilla kona hans frá sér raddskilaboð til almennings í dag.
Karl sagði þau hjónin óska þess að fólk ætti dásamlegan krýningardag. Kamila óskaði öllum á faraldsfæti öruggra og þægilegra ferða. Og Karl endaði á kunnuglegri viðvörun í lestum Bretlands, „Mind the gap“ eða gætið ykkar á bilinu.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú verða ásamt um eða yfir fjörutíu þjóðarleiðtogum og fulltrúum annarra ríkja og samveldislanda viðstödd athöfnina í Westminster Abbey. Þeirra á meðal Anthony Albanese forsætisráðherra Ástralíu sem er lýðveldissinni.
Hann segir engu að síður um sögulega stund að ræða eftir ótrúlega 70 ára þjónustu, skyldurækni og eljusemi Elísabetar II móður Karls. Athöfnin markaði formlega viðurkenningu á nýjum þjóðhöfðingja í núverandi kerfi. Honum liði því ekki undarlega við þessar aðstæður.
„Nei alls ekki. Ég hef ekki skipt um skoðun og hef gert öllum grein fyrir því. Ég vil sjá Ástrala í embætti þjóðhöfðingja. Það þýðir hins vegar ekki að ég beri ekki virðingu fyrir þeim stofnunum sem eru grundvöllur stjórnkerfis okkar eins og það er í dag," sagði Albanese.
Útsending Vísis og Stöðvar 2/Vísis hefst klukkan 08:45 og stendur til um klukkan 13:30 þegar flugsveit breska hersins flýgur heiðursflug yfir Buckingham höll.