Innlent

Hafa ekki lagt það í vana sinn að skrópa þegar kallið kemur

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Geoffrey Þór Huntingdon-Williams, skemmtistaðaeigandi og stjórnarmaður í Samtökum reykvískra skemmtistaða.
Geoffrey Þór Huntingdon-Williams, skemmtistaðaeigandi og stjórnarmaður í Samtökum reykvískra skemmtistaða. Vísir/hjalti

Samtök reykvískra skemmtistaða hafa farið fram á annan fund með mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði Reykjavíkurborgar. Fjarvera stjórnarinnar á fundi sem haldinn var á fimmtudag skýrist af því að fundarboð barst ekki. Lögregla verður áfram með aukinn viðbúnað í miðbænum eftir hnífaárás á Bankastræti club fyrr í mánuðinum.

Því var slegið upp í Morgunblaðinu í morgun að fulltrúar Samtaka reykvískra skemmtistaða hefðu verið fjarverandi á fundi mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar á fimmtudag. Skemmtistaðafulltrúar voru boðaðir á fundinn til að taka þátt í umræðu um ofbeldi í almannarými. 

Algjör hvirfilbylur

Geoffrey Þór Huntingdon-Williams, skemmtistaðareigandi og stjórnarmaður í Samtökum reykvískra skemmtistaða, segir einfalda ástæðu fyrir fjarveru samtakanna á fundinum. Fundarboð í tölvupósti hafi farið fram hjá stjórninni.

„Svo var eftirfylgnin ekki slík að við höfum vitað af honum hreinlega. Þannig að við höfum þegar farið fram á endurupptöku þessa fundar. Við höfum ekki lagt það í vana okkar að mæta ekki þegar kallið kemur. Það má við þetta bæta að það var heldur ekki kallað eftir Samtökum fyrirtækja í veitingarekstri á þennan fund. Það hafði víst staðið til að þau yrðu þarna líka,“ segir Geoffrey.

Nýðliðin helgi hafi vissulega verið róleg. Laugardagskvöldið þó öllu líflegra en föstudagskvöldið.

„Síðustu tvær vikur hafa náttúrulega verið algjör hvirfilbylur fyrir alla veitingamenn í miðborginni og það er aðeins byrjað að birta til núna. Og samtalið heldur bara áfram,“ segir Geoffrey.

Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald

Stóraukinn viðbúnaður var í miðbænum um helgina vegna árásarinnar á Bankastræti club fyrir rúmri viku. Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir aukinn viðbúnað verða áfram og fram yfir næstu helgi. Inntur eftir því hvort eitthvað hafi komið upp sem tengist mögulega árásinni nefnir hann grímuklæddan mann sem vann skemmdarverk á bílum aðfaranótt laugardags, sem færður var í fangageymslu. Þá var tilkynnt um rán sama kvöld og þar hafi meintir gerendur haft tengsl við annan hópinn sem tengist árásinni.

Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu segir lögreglu telja sig hafa komið í veg fyrir frekari átök milli hópa tengdum árásinni. Gæsluvarðhald yfir fjórum af sex sem eru í varðhaldi vegna málsins rennur út í dag. Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir umræddum fjórum á grundvelli almannahagsmuna.


Tengdar fréttir

„Vonandi verður þetta betra í kvöld“

Skemmtistaðaeigandi í miðbæ Reykjavíkur vonar að meiri aðsókn verði í bæinn í kvöld en í gær. Hann telur of mikið hafa verið gert úr sögusögnum af mögulegum hnífstunguárásum þar um helgina í fjölmiðlum og skilur vel að fólk sé smeykt. Lögregla er aftur með mjög aukinn viðbúnað í bænum í kvöld. 

Aukinn við­búnaður í mið­bænum næstu daga

Lítið var um að vera í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld og í nótt þrátt fyrir áhyggjur lögreglu um átök milli hópa. Lögregla var með aukinn viðbúnað í miðbænum vegna deilna sem hófust með stunguárás í Bankastræti Club fyrir rúmri viku síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×