Innlent

Lækna-Tómas kallar eftir neyðar­stjórn yfir Land­spítalanum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á Landspítala, kallar eftir að neyðarstjórn verði skipuð yfir spítalann.
Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á Landspítala, kallar eftir að neyðarstjórn verði skipuð yfir spítalann. Vísir

Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á skurðdeild Landspítalans, kallar eftir því að neyðarstjórn verði skipuð yfir Landspítalann. Hann segir stöðuna grafalvarlega á spítalanum.

Tómas gagnrýndi á þriðjudag Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, fyrir hvatningu þeirra til þess að sóttvarnaaðgerðum yrði aflétt. 

Skrifaði hann til dæmis í pistli sem birtist á Vísi að Landspítali sé enn og aftur kominn á hættustig, gjörgæsludeildir spítalans séu fullar og staðan á smitsjúkdóma- og lungnadeild þung. Afleiðingarnar á hárri smittíðni hér á landi endurspeglist í þeirri staðreynd að önnur ríki vari nú þegna sína við ferðalögum til Íslands. 

„Er þetta fyrirsjáanleikinn sem ferðaþjónusta og samtök atvinnurekenda voru að auglýsa eftir, og það frá sjálfum ráðherra málaflokksins? Orðum fylgir ábyrgð. Það verður að teljast skrítið að ráðherrar skuli stíga fram undir formerkjum einstaklingsfrelsis og afnema takmarkanir sem eru nauðsynlegar og settar á með mannúð og hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi,“ skrifaði Tómas. 

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, hefur síðan gagnrýnt Tómas fyrir orð hans og sakað hann um karlrembulegan læknahroka. 

Björn Ingi og Tómas komu saman í Kastljósi á RÚV í kvöld til að ræða málið. Voru þeir sammála um að staðan á Landspítalanum sé svo slæm vegna þess að Landspítalann haldi ekki í við önnur verkefni á sama tíma og deildir eru undirlagðar af Covid-sjúklingum. Fjármagn vanti á Landspítalann til að hægt sé að greiða starfsmönnum þess laun sem þeir fallist á miðað við álag. 

„Við þurfum að gera hlutina í réttri röð. Við erum bara í þeirri aðstöðu núna að við getum varla leyst þetta. Það þarf þverpólitíska sátt og að allir flokkar setjist niður og það sé sett heildarstefna á málaflokkinn til lengri tíma. Ekki bara eitt kjörtímabil heilbrigðisráðherra, að menn tali saman. Jafnvel neyðarstjórn yfir spítalann, þó ég viti að sumum á spítalanum hugnist það ekki,“ sagði Tómas. 

„Við verðum í þessari umræðu að höfða til mannúðar, ég skil alveg þetta með frelsið og að allir séu orðnir pirraðir því það sé ekki hægt að halda tónleika. En það verður að sýna skilning og mannúð. Hvar eru Alþingismenn og ráðherrar? Af hverja koma þeir ekki upp á spítala að heimsækja okkur og sjá í auga stormsins?“


Tengdar fréttir

Lækna-Tómas hund­skammar Ás­laugu Örnu og Þór­dísi Kol­brúnu

„Nær daglega heyrast neyðaróp frá bráðamóttöku spítalans, þar sem ástandið er fyrir löngu orðið algjörlega óboðlegt, bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk. Á gjörgæsludeildum spítalans er ástandið ekki síður alvarlegt, og nálgast neyðarástand.“

Flaggskip með net í skrúfunni

Það er sárt að sjá hvernig sumar lykildeildir Landspítala eru hægt og sígandi að sökkva í sæ. Það eru engar ýkjur að flaggskip íslenska heilbrigðiskerfisins er komið með net í skrúfuna – og virðist reka að klettóttri strönd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×