Hún segist vera í felum heima hjá sér og að ekki sé hægt að treysta orðum Talibana um að stjórnartíðin nú verði mildari.
Talibanar hafa tekið völdin í Afganistan eftir að þeir náðu yfirráðum yfir höfuðborginni á sunnudaginn. Talibanar voru við völd í landinu á árunum 1996-2001. Undir stjórn þeirra voru réttindi kvenna mjög skert, og óttast margir að það sama verði upp á teningnum nú.
Þeirra á meðal er kona sem ræddi við BBC án þess að koma fram undir nafni, enda óttast hún mjög um afdrif sín nú þegar Talibanar hafa tekið yfir.
„Sunnudagurinn var hræðilegasti dagur lífs míns,“ skrifar konan á vef BBC þar sem hún lýsir sunnudeginum.
Óttaðist um líf sitt vegna þess hvernig hún var klædd
Segir hún að íbúar hafi verið hræddir við að yfirtaka Talibana væri yfirvofandi, en að hún hafi ekki talið mögulegt að þeir kæmust inn í höfuðborgina. Hún hafi því farið til vinnu þennan sunnudagsmorgun. Þegar hún yfirgaf vinnustaðinn sá hún að andrúmsloftið hafði breyst. Hún reyndi að fara í banka til þess að taka út pening. Þá tók hún eftir því að fjölskylda hennar hefði reynt að hringja í hana.
„Ég var hrædd vegna þess að ég hélt að eitthvað hafði komið fyrir. Ég hringdi í mömmu sem spurði hvar ég væri og hvað ég væri að gera. Ég ætti að drífa mig heim því að Talibanarnir væri komnir í vesturhluta borgarinnar,“ skrifar konan.
Segir konan að hún hafi ákveðið að drífa sig heim. Á leiðinni fylltist hún ótta.
„Ég óttaðist að ef Talibanarnir myndu sjá mig myndu þeir drepa mig þar sem ég væri klædd í föt sem bentu til þess að ég ynni á skrifstofu,“ skrifar konan.
Ekki hægt að treysta Talibönum
Segir konan að henni hafi langað til að flýja til frænda síns og fara í felur þar, en hún vilji ekki leggja hann í hættu. Því sé hún í felum heima hjá sér. Hún hefur ekki mikla trú á yfirlýsingar Talibana um að stjórn þeirra í þetta skiptið verði mildari.
„Við höfum séð ógnarstjórn þeirra. Hvernig getum við treyst þeim? Ég sef ekki fyrir hræðslu,“ skrifar konan.
Segist konan vera ein af þeim fjölmörgu sem bíður eftir að fá vegabréfaheimild til þess að komast burt frá Afganistan, þar sem hún hafi enga trú á því að henni verði leyft að vinna.
„Ég hef glatað trú minni á framtíðina.“