Innlent

Fimm greindust innanlands og átján á landamærum

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa um 5.800 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi heimsfaraldursins.
Alls hafa um 5.800 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi heimsfaraldursins. Vísir/Vilhelm

Fimm greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru tuttugu nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af enginn á gjörgæslu. Í gær voru 22 á sjúkrahúsi og enginn á gjörgæslu.

Átján greindust smitaðir á landamærum í gær – tólf með virkt smit og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum sex.

127 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 111 í gær. Þá eru 152 í sóttkví í dag, samanborið við 136 í gær.

Af þeim fimm sem greindust í gær greindust allir eftir svokallaða einkennasýnatöku.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 18,8, en var 20,7 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 21,3, en var 19,1 í gær.

Alls hafa 5.832 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 777 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 791 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin átján í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×