Erlent

Fundu fullkomlega varðveittan ísaldarbjörn í Síberíu

Kjartan Kjartansson skrifar
Hræið er nær fullkomlega varðveitt, þar á meðal tennur og trýni hellisbjarnarins.
Hræið er nær fullkomlega varðveitt, þar á meðal tennur og trýni hellisbjarnarins. NEFU RIAEN

Hreindýrahirðar í Síberíu fundu fullkomlega varðveitt hræ hellisbjarnar, útdauðrar bjarnartegundar frá ísöld, í þiðnandi sífrera. Tennur og trýni skepnunnar er enn í heilu lagi. Fundurinn þykir stórmerkilegur enda höfðu menn aðeins fundið bein úr hellisbjörnum fram að þessu.

Hræið fannst á Bolshoj Ljakhovkíj-eyju sem er hluti af Nýsíberíska eyjaklasanum á milli Laptev-hafs og Austur-Síberíuhafs norðan við Síberíu. Í tilkynningu frá vísindamönnum við Norðausturalríkisháskólann í Jakútsk segir að uppgötvunin sé sú eina sinnar tegundar.

„Hann er algerlega varðveittur með öll innri líffærin á sínum stað, jafnvel nefið á honum. Þessi fundur skiptir allan heiminn miklu máli,“ segir Lena Grigorieva, einn vísindamannanna.

Bráðabirgðagreining á hræinu bendir til þess að það sé af fullorðnum hellisbirni sem lifði fyrir 22.000 til 39.500 árum, að sögn AP-fréttastofunnar. Hellisbirnir urðu útdauðir fyrir um 15.000 árum.

Vel varðveitt hræ hafa komið undan bráðnandi sífrera í Síberíu vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna á undanförnum árum, þar á meðal af loðfílum, ísaldarfolaldi, hvolpum og hellisljónaungum. Vísindamenn vonast til þess að ná DNA-sýni úr hræi hellisbjarnarhúns sem fannst á meginlandi Rússlands í Jakútíu nýlega.

Hellisbirnir dóu út á síðasta ísaldarskeiði.NEFA/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×