Hægri beygja Mette gæti kostað Jafnaðarmenn Kaupmannahöfn Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 18. nóvember 2025 07:24 Mette hengir upp kosningaplakat fyrir borgarstjórann í Herlev. Stefnubreyting hennar gæti kostað Jafnaðarmenn völdin í höfuðborginni. EPA/MADS CLAUS RASMUSSEN Danir ganga að kjörborðinu í dag og velja í borgar- og sveitarstjórnir landsins. Skoðannakannanir benda til þess að svo gæti farið að Jafnaðarmannaflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra tapi meirihluta sínum í höfuðborginni Kaupmannahöfn.
Það yrði saga til næsta bæjar því Jafnaðarmenn hafa stjórnað borginni í meira en hundrað ár og allt frá árinu 1938, þegar yfirborgarstjóraembættinu í núverandi mynd var komið á, hefur sá ávallt komið úr röðum Jafnaðarmanna. Í umfjöllun Guardian er hermt að nú gæti orðið breyting á og á meðal skýringa er óánægja borgarbúa með ákveðna hægri slgasíðu sem Mette Frederiksen er sögð hafa sett á flokkinn. Hún hefur tekið upp mun harðari stefnu í til að mynda innflytjendamálum en áður tíðkaðist hjá Jafnaðarmönnum og er það sagt hafa fallið í nokkuð grýttan jarðveg hjá höfuðborgarbúum. Blaðið hefur eftir Bent Winter blaðamanni hjá Berlingske að kapphlaupið um Kaupmannahöfn hafi í það minnsta aldrei verið jafnara. Hann segir skoðanakannanir benda til þess að flokkarnir vinstra megin við Jafnaðarmannaflokkinn eygi nú raunverulegan möguleika á því að mynda meirihluta í Kaupmannahöfn án aðkomu Jafnaðarmanna. Það hjálpar ekki til að frambjóðandi Jafnaðarmanna til borgarstjóraembættisins er Pernille Rosenkrantz-Theil, fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Mette Frederiksen og góð vinkona hennar. Svo góð raunar að þær eiga sumarhús saman.
Danmörk Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira