Dagur í lífi flugumanns – rómversk yfirtaka á Gaulverjabæ Hafþór Sævarsson Ciesielski skrifar 9. september 2020 10:00 Landsþing Ungra jafnaðarmanna hafði ég aldrei sótt áður, en ég hafði (þrátt fyrir linkind móðurflokksins við rasisma, nýlenduhyggju og annað ofbeldi sem er innbyggt í eðli og hlutverk hryðjuverkasamtakanna NATÓ) ákveðið að skrá mig í Samfylkinguna. Hvers vegna? Jú, fyrir þann einbeitta vilja að taka þátt á því ágæta þingi ungliða jafnaðarfólksins sem fór fram s.l. laugardag: Landsþingi UJ. Jafnvel þótt ég hafi nú ekki verið í neinu framboði sjálfur. Svo taldi ég mig nú einmitt þekkja gott fólk þaðan og hef átt ánægjulegar samræður og notið góðra samvista í gegnum tíðina. Til að gæta allrar sanngirni þá má þó alveg skilgreina mig sem einskonar “flugumann” á téðu landsþingi, ég tek því sem einskonar heiðursnafnbót. En ég var líka á meðal góðra vina og með gildi jöfnuðar í fararbroddi sem forsendu réttláts samfélags, já. Ég er algjörlega samþykkur þeim grundvelli, þannig ég taldi mig svona, þokkalega, gjaldgengan á samkomuna. Ástæðan fyrir mætingu minni og heiðursnafnbótinni, sbr. 25. gr.reglugerðar um sérstakar aðferðir og aðgerðir lögreglu við rannsókn sakamála, var sumsé ekki einvörðungu það háttvirta markmið hreyfingarinnar um alheimsfrið, jöfnuð og jafnvel blóm í haga - því miður – þó ég er algjörlega hlynntur slíkri heilagri þrenningu. Nú, hvað þá? Ég játa, ég er einfaldlega þannig af náttúrunni gerður að leyndardómar eiga það til að kitla einhverjar taugar hjá mér. Ég hafði skynjað útundan mér að eitthvað lægi í loftinu: „Já, þú segir nokkuð, en áhugavert!” svaraði ég slíkum straumum um hæl með gæsahúð og tilhlökkun í farteskinu. Tveir frambjóðendur til forseta, annar í kjarna ungliða hreyfingarinnar til margra ára og fyrrum varaforseti, svona augljósi kosturinn: Ástríkur gallvaski. Og svo hinn frambjóðandinn: Borgarfulltrúi fyrir móðurflokkinn, Samfylkinguna, en sá hafði gegnt formennsku Röskvu ásamt ýmsu öðru frambærilegu en frekar ótengt öllu starfi ungliðahreyfingarinnar, hin eina sanna Kleópatra. Báðir frambærilegir kostir en miðað við félagsstarfið, hugmyndafræðina og annað taldi ég fyrirfram vita fyrir víst að sá fyrrnefndi – sem ég var að tengja betur við hugmyndafræðilega og þekkti til – myndi hljóta nokkuð, já, örugga kosningu. Ég taldi mig vita það fyrir víst að sá kostur yrði fyrir valinu áður en ég fékk að vita að eitthvað væri á seyði. Tölur kvöldsins? 81 atkvæði fyrir Ástrík gallvaska og svo féllu raunar 201(?!) atkvæði fyrir Kleópötru! Nú er ég enginn talnasérfræðingur (get þó lesið stjörnukort með ágætum) en taldi mig þó fá eins konar sönnun á því andrúmslofti sem spennan leyndardómsfulla hafði gefið undir fótinn. Einmitt það sem margan hafði grunað var á rökum reist, hugsaði ég sem fluga á vegg. Hvernig gat sá kostur sem ungliðahreyfing Gaulverjabæjar vildi til forseta tapað kosningunni til forseta með jafn afgerandi hætti? Svarið er auðvitað einfalt. Það voru víst eitthvað fleiri nýskráningar þarna í aðdragandanum en bara þessi eina frá mér, flugumanninum sjálfum! Við kaffidrykkjuna á fundinum fór hins vegar ákveðið töfraraunsæi að taka völdin frá athyglisgáfu minni. Hvers vegna meint svart kaffi hafði þau áhrif á mig á þessum tímapunkti, veit ég ekki. Það má vera að Sjóðríkur seiðkarl hafi bruggað þennan seið þó ég telji mig ekki geta fullyrt um það á þessari stundu. Það kom allavega ekki fram með bragðinu. En það sem ég veit er að ég fór að sjá ýmsa liti birtast, mynstur formgerast og mekanisma gangverks raungerast – og það var enginn óþægileg afstaða milli Merkúrs eða Neptúnusar þennan dag á mínar fæðingarstöður (svo stjörnuspekin gat ekki útskýrt þessar ofsskynjanir hjá mér). En þarna, allt í kringum mig, sé ég fyrir mér fjöldann allan af rómverskum fótgönguliðum, fyrrum Röskvuliðar, meira að segja með innri greiningardeild á sínum snærum! Allir fótgönguliðarnir komu mér fyrir sjónir í sama búningnum og með sama svip, með rauðu og gulu litina (sem er vægast sagt ónákvæm sagnfræði, en ofskynjanir spyrja ekki að því). Þrjár uglur í bláum og hvítum litum flugu yfir svæðið, ég veit ekkert hvaðan þær komu úr bakgrunninum. Þetta var komið gott, hugsaði ég með mér. Það var kominn tími til að taka af sér selfí inná baði. Þar gekk ungur fótgönguliði inn, ég afsakaði mína nánu stund með speglinum einum saman: „Ekki hafa áhyggjur af mér, ég er bara að taka selfí, sko”, „já minnsta, ég er bara að styðja vin minn Júilíus Sesar”. „Kúl” svara ég, léttur í lund þó Ástríkur hafi verið minn maður, á hugu og hjörtu margra í Gaulverjabæ. Ég tek af mér mynd með fingur fyrir framan varir. Svo fer ég inn og sé að Kleópatra heldur sigurræðu sína. Skipuleg og snyrtileg yfirtaka eins og Rómverjum er einum lagið, tilgangurinn þó jafn hulinn eins og ræðan var auðmjúk. Það verður spennandi að sjá hvað setur. Eftir ræðuna breyttist leiksvið Gaulverjabæjar í Film Noir sviðsmynd. Hver er þetta þarna? Ljós rykfrakki og bergmál af marmara þegar hann gekk fínlega á svörtum skóm með hörðum hæl undir sér. Hver er þar innan klæða? Maður á þrítugsaldri, augljóslega sérfræðingur þjóðaröryggisráðs, með áttavita í regnbogalitum að ráða í spilin. Og hver er þetta sem ég sé? Án þess að það sjarmerandi, velmenntaða og orðheppna ofurmenni hafi gert flugu mein, fannst mér áhugavert að sjá barnabarn leyniþjónustu konungs Íslands (sem þó kraup fyrir – þrátt fyrir konungstign sína – bandaríska herveldinu) með í ráðum sérfræðings innri öryggismála Íslands, að taka yfir – að því er virtist – ungliðahreyfingu stjórnmálaflokks. Ungliða-leyniþjónstuliðar þessir, í sönnum kaldastríðs anda, voru þarna ásamt öðrum ofurheilum, skýrendum og greinendum sinnar kynslóðar. Og Kleópatra að sjálfsögðu þeirra á meðal. Það var mér mikill heiður að vera kringum svo spennandi fólk, þó ég sé ekki öryggisvottaður. Jæja, barnapían var farin að ókyrrast á þessari stundu og ég náði ekki að spyrja af því sem brann á vörum mér! Ég þurfti að hugsa mér til hreyfings. Ég kvaddi Gaulverjabæ og gekk út þaðan sem kaldastríðið var enn við líði. Fyrir utan fann ég sótuga bréfsnepla sem ég vissi að kæmu frá Birni Bjarnasyni, sloppna fyrir hendingu úr reykhafi ónefndrar gataðrar olíutunnu fyrri ára. Það eina sem ég gat lesið af þeim: „jafnframt treysti hann "sínum mönnum" til að leysa hin erfiðustu verkefni á farsælan hátt með öryggi borgaranna að leiðarljósi.” Ofsskynjanir leiða mig alltaf að kaldastríðinu, það er bara vegna persónulegra ástæðna á óuppgerðri fortíð. Skynvilla. Orðanotkun Björns á „sínum mönnum” fór í taugarnar á mér þarna við útganginn. Átti þó kannski rétt á sér á þeim tíma, þar sem aðeins menn komu til greina til úrlausnar þungra verkefni í öryggisbransanum. Og þó! Ég held ég hafi það eftir Morgunblaðinu að Snjólaug Sigurðardóttir hafi verið meðal „manna” í leyniþjónustu bróður síns í den. (Jóhann Páll Jóhannsson, margverðlaunaður blaðamaður, er ekki módelið í L’oreal auglýsingunni þarna uppi í hægra horni síðasta hlekks!) En í dag, konur geta kannski verið menn, en kommon! Og hugtakið fólk t.d. nær yfir öll önnur kyn líka! Óháð máltilfinningu menntamanna, hvað Árnastofnun hefur um málið að segja eða hvernig skrifstofa Bessastaða getur hrútskýrt málið. Hugsaði ég með mér og flaug í burtu. „ Og þó ég ei til annars mætti duga, ég eflaust gæti kitlað nefið þitt.“ Höfundur er sundlaugarvörður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hafþór Sævarsson Ciesielski Samfylkingin Mest lesið Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Lesblinda og skólahald á Norðurlöndunum Snævar Ívarsson Skoðun Hraðara regluverk fyrir ómissandi innviði! Sólrún Kristjánsdóttir Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun Heimspeki og hugmyndaheimur Kína Jón Sigurgeirsson Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins Skoðun Skoðun Skoðun Við elskum pizzur Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins skrifar Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson skrifar Skoðun Hraðara regluverk fyrir ómissandi innviði! Sólrún Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Lesblinda og skólahald á Norðurlöndunum Snævar Ívarsson skrifar Skoðun Heimspeki og hugmyndaheimur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal skrifar Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Jafnréttisstofa í 25 ár: Er þetta ekki komið? Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Hvar er textinn? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Berklar, Krakk og Rough Sleep Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Blóðugar afleiðingar lyga Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Hinsegin samfélagið á heimili í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Áhrif Vesturlanda og vöxtur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Alvöru fjárlög fyrir venjulegt fólk Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafa börn frjálsan vilja? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvers vegna halda Íslendingar með Dönum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað varð um þinn minnsta bróður? Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til að verða bergnuminn Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Þriðja leiðin í námsmati stuðlar að snemmtækri íhlutun Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna Alma D. Möller skrifar Skoðun Hækkun skrásetningargjalds – Segjum sannleikann Eiríkur Kúld Viktorsson skrifar Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar Skoðun Hvaða módel ertu? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Tilgáta um brjálsemi þjóðarleiðtoga Gunnar Björgvinsson skrifar Sjá meira
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun
Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun
Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar
Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar
Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun
Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun