Viðskipti innlent

Upp­sagnir fyrir­hugaðar hjá Icelandair vegna kórónu­veirunnar

Eiður Þór Árnason skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Vilhelm

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group segir útlit fyrir að félagið þurfi að grípa til uppsagna vegna ástandsins sem nú ríkir á flugmarkaði. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir því að eftirspurn eftir flugi verði frekar lítil næstu vikur og jafnvel mánuði vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

„Við erum að horfa til þess að eftirspurnin hefur minnkað mjög mikið og það sem við getum gert til þess að bregðast við því er að aðlaga framboðið og við erum bara að vinna að mótvægisaðgerðum núna þessa dagana,“ sagði Bogi í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Sjá einnig: Icelandair aflýsir 80 ferðum vegna veirunnar

„Ég held að það sé óhjákvæmilegt að við verðum að taka ákvarðanir sem eru bæði erfiðar og geta verið sársaukafullar, við verðum að gera það.“

Hann segir þá ábyrgð hvíla á stjórnendum fyrirtækisins að koma því vel í gegnum þá erfiðu stöðu sem nú ríki.

„Þegar við minnkum okkar framboð þá þýðir það að það þarf færra fólk. Við erum að sjá þetta gerast í kringum okkur hjá flugfélögum á Norðurlöndum og víðar að það er verið að skera niður og fækka fólki og það er alveg ljóst að við verðum að gera slíkt hið sama.“

Nú þegar hefur flugfélagið ákveðið að hætta við áttatíu flugferðir í mars og apríl en í tilkynningu til Kauphallarinnar í morgun segist Icelandair ekki getað útilokað að fleiri ferðum verði aflýst. Félagið segir að niðurfellingum sé ætlað að vernda fjárhagslega hagsmuni fyrirtækisins.

Sjá einnig: Icelandair íhugar að fella niður fleiri ferðir

Erum við þá að tala um heilt yfir línuna, það er að segja áhafnir og á skrifstofu?

„Ja, plönin liggja ekki fyrir en ég held að það sé alveg ljóst að við þurfum að horfa yfir allt sviðið hjá okkur.“

Stjórnendur félagsins reikna með því eins og fyrr segir að eftirspurn verði frekar dræm næstu vikur og mánuði. Þeir vonast hins vegar til þess að það fari aftur að birta til síðar á árinu.

Við teljum það áfram að fólk vilji ferðast.“

Fram kom í tilkynningunni sem félagið sendi frá sér í dag að Icelandair fylgist nú vel með útbreiðslu kórónuveirunnar, enda hefur hún haft teljandi áhrif á eftirspurn eftir flugi um allan heim. Unnið væri að því að endurmeta flugáætlun í ljósi minnkandi eftirspurnar og færri bókana.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×