Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á frumum og súrefni Kjartan Kjartansson skrifar 7. október 2019 09:58 Nóbelsverðlaunin fyrir læknisfræði voru tilkynnt nú í morgun.
Þrír vísindamenn deila Nóbelsverðlaununum í læknisfræði í ár fyrir rannsóknar þeirra á hvernig frumur nema og laga sig að framboði á súrefni. Rannsóknir þeirra eru sagðar hafa þýðingu á mörgum sviðum, þar á meðal fyrir meðgöngu, háfjallaveiki, krabbamein og hvernig sár gróa. Þeir William G. Kaelin yngri frá Harvard-háskóla, Peter J. Ratcliffe frá Francis Crick-stofnuninni í London og Gregg L. Semenza frá Johns Hopkins-háskóla hljóta verðlaunin í ár. Nóbelsnefndin tilkynnti þetta í Stokkhólmi í morgun.Brjóstmynd af Alfreð Nóbel sem verðlaunin eru kennd við. Hann fann meðal annars um dýnamítAP/Henrik Montogemry„Áhrifamiklar uppgötvanir nóbelsverðlaunahafa þessa árs afhjúpuðu gangverkið í einu mikilvægasta aðlögunarferli lífsins,“ sagði Nóbelsnefndin í umsögn sinni, að því er segir í frétt Reuters. Það hafi lengi verið leyndardómur hvernig frumur aðlagast þegar framboð á súrefni sveiflast til eða frá. Verðlaunahafarnir hafi leitt í ljós hvernig virkni gena breytist eftir því sem styrkur súrefnis í umhverfi breytist. Hæfileiki frumna til að aðlagast súrefnisstyrk er talinn lykilástæða þess að dýrategundir hafi numið land á svo ólíkum búsvæðum. Vísindamennirnir þrír fá níu milljónir sænskra króna í verðlaunafé, jafnvirði rúmra 113 milljóna íslenskra króna.
Nóbelsverðlaun Vísindi Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira