Besti leikmaður NBA bara í 78. sæti yfir stigahæstu leikmenn HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. september 2019 15:30 Giannis Antetokounmpo hefur verið í smá basli á HM í Kína til þessa. Getty/Shi Tang
Heimsmeistaramótið í körfubolta í Kína hefur ekki byrjað alveg nógu vel fyrir besta leikmann NBA deildarinnar á síðustu leiktíð. Giannis Antetokounmpo spilar með gríska landsliðinu sem hefur einn sigur í fyrstu tveimur leikjum sínum og er því enn ekki öruggt með sæti í næstu umferð. Örlög liðsins ráðast í leik á móti Nýja Sjálandi í lokaumferðinni á morgun. Þar þarf liðið á meiru að halda frá Antetokounmpo en í fyrstu tveimur leikjum heimsmeistaramótsins á móti Svartfjallalandi og Brasilíu. Giannis Antetokounmpo var kosinn mikilvægasti leikmaðurinn í NBA eftir að hafa farið á kostum með Milwaukee Bucks. Giannis Antetokounmpo var með 27,7 stig, 12,5 fráköst og 5,9 stoðsendingar að meðaltali í leik í deildarkeppni NBA og í úrslitakeppninni var hann með 25,5 stig, 12,2 fráköst og 4,9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Á HM í Kína er hann hins vegar aðeins með 11,5 stig, 6,0 fráköst og 1,0 stoðsendingu að meðaltali í leik. Hann hefur fengið 4,0 villur í leik og fór af velli með fimm villur í tapinu á móti Brasilíu. Antetokounmpo er eins og er í 78. sæti yfir stigahæstu leikmenn HM í Kína en hann var í 76. sæti eftir leikina í gær. Það má finna allan listann hér. Giannis Antetokounmpo var með 10 stig og 8 fráköst í fyrsta leiknum á móti Svartfjallalalandi en skoraði síðan 13 stig og tók 4 fráköst í öðrum leiknum á móti Brasilíu. Hann hefur hitt úr undir 45 prósent skota sinna í báðum þessum leikjum og hefur enn ekki sett niður þriggja stiga skot á mótinu. Góðu fréttirnar eru þær að Giannis Antetokounmpo hefur nýtt öll níu vítin sín til þessa.
Körfubolti Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira