Fótbolti

Danir eiga þrjá af þeim efnilegustu í heimi en Íslendingar engan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fótboltavefsíðan „In Bed With Maradona“ hefur eins og í fyrra valið hundrað bestu fótboltamenn heims sem eru 21 árs og yngri en leikmennirnir koma víðsvegar að úr heiminum.

Ísland á hinsvegar engan leikmann á lista ólíkt Norðurlandaþjóðunum Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

Danir virðast vera afar vel settir með framtíðarlandslið sitt því alls eru þrír danskir leikmenn á þessum lista. Svíar og Norðmenn verða að láta sér nægja að vera bara með einn leikmann.

Danirnir þrír á listanum eru þeir Kasper Dolberg hjá Ajax, Andrew Hjulsager hjá Bröndby IF og Marcus Ingvartsen hjá FC Nordsjælland. Svíinn er Alexander Isak hjá AIK og Norðmaðurinn er Sander Berge hjá Valerenga.

Danir eru sem dæmi með fleiri leikmenn en Englendingar en einu ensku leikmennirnir á listanum eru þeir Dele Alli hjá Tottenham og Lewis Baker hjá Chelsea.

Fótboltavefsíðan „In Bed With Maradona“  notar sama fyrirkomulag og þegar spænska blaðið Don Balon valdi efnilegustu fótboltamenn heimsins.

Tólf Frakkar eru á listanum og eru franskur fótbolti með nokkra yfirburðarstöðu hvað varðar flesta menn á listanum. Fimm leikmenn koma frá bæði Þýskalandi og Spáni en aðrar þjóðir eiga færri menn.

Á listanum eru leikmenn sem eru þegar komnir að hjá bestu liðum Evrópu. Þetta eru menn eins og þeir Gabriel Jesus og Kelechi Iheanacho hjá Manchester City, Ousmane Dembélé, Christian Pulisic og Julian Weigl hjá Borussia Dortmund, Joshua Kimmich hjá Bayern München, Héctor Bellerín og Alex Iwobi hjá Arsenal og þeir Manuel Locatelli, Alessio Romagnoli og Gianluigi Donnarumma hjá AC Milan.

Það að enginn Íslendingur sé á listanum er þó engin dauðadómur fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni sem leggur alltaf meiri áherslu á liðsheildina en einstaklingana. Vonandi tekst þó íslenskum fótboltamönnum á þessum aldrei að skapa sér nafni í heimsfótboltanum í framtíðinni.

Það er hægt að nálgast allan listann með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×