„Ég er mjög spenntur fyrir þessum stórleik en þetta er minn fyrsti bikarúrslitaleikur. Maður er í þessu til að spila þessa stóru leiki,“ sagði Thomas þegar blaðamaður Vísis ræddi við hann í höfuðstöðvum KSÍ í gær.
„Sagan og rígurinn milli liðanna skiptir miklu máli. Við viljum gera okkar allra besta fyrir Val og stuðningsmenn félagsins og KR-ingar það sama. Það verður mikil undiralda í leiknum og hart barist sem gerir þetta að enn betri leik. Vonandi verður leikurinn góður og úrslitin hagstæð.“

„Vonandi hefur það góð áhrif á okkur og við verðum enn ákveðnari í að vinna. Við höfum ekki verið að spila illa en höfum ekki verið að skora mörk. Vonandi koma þau á laugardaginn,“ sagði Thomas sem segir landa sinn, Patrick Pedersen, vera mikilvægan hlekk í liði Vals og vonast til að hann verði með á morgun en Pedersen hefur glímt við meiðsli á undanförnum vikum.
„Patrick er okkar aðalmarkaskorari og mjög góður leikmaður svo hann er liðinu mikilvægur. En ef hann verður ekki með koma bara aðrir inn í staðinn. Vonandi verður Patrick með en ef ekki þá finnum við aðrar lausnir.“

Daninn hefur haft góð áhrif á lið Vals og spilað vel. Hann var m.a. valinn í lið umferða 1-11 í Pepsi-deildinni af Fréttablaðinu og var í 7. sæti í einkunnagjöf blaðsins eftir fyrri hluta mótsins. Thomas kveðst ánægður með lífið á Íslandi.
„Þetta hefur verið mjög gaman. Leikstíllinn og hugsunarhátturinn hér er frábrugðinn því sem ég er vanur. En mér líkar vel hérna og við höfum unnið marga leiki,“ sagði Daninn geðþekki sem sér ekki eftir þeirri ákvörðun sinni að koma til Íslands.
„Nei, alls ekki. Ég var ekki inni í myndinni hjá Hammarby, sem hafa reyndar ekki verið að vinna leiki síðan ég fór. Þetta var góð breyting fyrir mig. Ég er hjá góðu félagi sem er með góða þjálfara svo ég hef notið dvalarinnar hér.“

„Ég reyni eins og ég get að leiðbeina og hjálpa honum og vonandi hef ég góð áhrif á hans feril. Orri er mjög þroskaður þrátt fyrir ungan aldur og er mjög hæfileikaríkur. Leikur hans ber þess merki að hann var hjá dönsku félagi,“ sagði Thomas og bætti við:
„Það kæmi mér ekki á óvart ef Orri færi í atvinnumennsku og myndi spila með landsliðinu í framtíðinni. Ég vona að hann nái langt. Hann hefur hæfileikana en það eru nokkrir þættir sem hann þarf að laga og vonandi gerir hann það.“
Orri var á sínum tíma á mála hjá danska liðinu AGF og Thomas segir gott að geta talað við félaga sinn í miðri Valsvörninni á dönsku.
„Það er kostur, hann skilur málið og við tölum saman á dönsku. Hann er einn af bestu félögum mínum í liðinu,“ sagði Thomas Christensen að lokum.