Formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, hefur ákveðið að gefa kost á sér í stjórn Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA.
Kosið verður í stjórnina á þingi sambandsins þann 24. mars næstkomandi. Kosið verður um sjö stjórnarmenn af fimmtán og Geir ætlar að taka slaginn þar.
Aðeins þeir sem eru virkir í starfi innan knattspyrnusambanda Evrópu eru kjörgengir og fram kemur á heimasíðu KSÍ að Geir sé einn af reyndari formönnum knattspyrnusambanda í Evrópu.
„Ég hef setið í ýmsum nefndum UEFA á undanförnum misserum sem formaður KSÍ og m. a. tekið virkan þátt í miklum breytingum á skipulagi móta fyrir A landslið karla í Evrópu sem að hluta hafa þegar litið dagsins ljós og fleiri breytingar verða innleiddar á næstu árum.
Ég hef fundið að reynsla mín af störfum fyrir knattspyrnuhreyfinguna hefur nýst mér vel á evrópskum vettvangi og framboð mitt til stjórnar UEFA mun ekki breyta því, að það er og verður mín fyrsta og helsta skylda að sinna málefnum KSÍ sem formaður á meðan ég nýt stuðnings aðildarfélaganna til þess", sagði Geir í tilefni af framboði sínu til stjórnar UEFA.
