Askan gæti kæft allan hagvöxt í Evrópu á þessu ári 19. apríl 2010 08:20 Í frétt Reuters segir að askan valdi því að sumarleyfisferðir eru blásnar af, vörusendingum seinkar og verulega dregur úr eftirspurn eftir þotueldsneyti.
Efnahagsleg áhrif öskunnar úr gosinu í Eyjafjallajökli gætu orðið víðtæk í Evrópu. Hagfræðingar telja að ef gosið stendur mánuðum saman muni það valda samdrætti í hagvexti um 1-2% í álfunni. Áður en gosið hófst var því spáð að hagöxtur í Evrópu yrði á bilinu 1-1,5% í ár. Fjallað er um málið á Reuters en þar kemur fram að stjórnvöld um alla norðanverða Evrópu eru undir miklum þrýstingi frá flugfélögnum um að opna lofthelgi landa sinna. Flugfélög í Danmörku hafa farið fram á ríkisaðstoð til að halda rekstri sínum gangandi meðan á gosinu stendur. Í frétt Reuters segir að askan valdi því að sumarleyfisferðir eru blásnar af, vörusendingum seinkar og verulega dregur úr eftirspurn eftir þotueldsneyti. Þá er nafnt að afrískir útflutjendur á ávöxtum og blómum treysta á flugfrakt til að koma vörum sínum á markað í Evrópu, tæknifyrirtæki treysta einnig á flug til að koma vörum sínum á áfangastað og ráðstefnuhald er í uppnámi. Vanessa Rossi aðalhagfræðingur Chatham House segir að ef gosið heldur áfram næstu vikurnar gæti það leitt til þess að enginn hagvöxtur yrði í Evrópu í ár. "Askan myndi bókstaflega kæfa efnahagsbatann," segir Rossi. "Vandamálið er að enginn getur sagt fyrir um hvenær gosinu muni ljúka." Ferðamennska og ferðamannaiðnaðurinn veltir um 3 trilljónum dollara á ári og af þeirri veltu er þriðjungurinn í Evrópu, að mestu yfir sumarmánuðina. Þessi velta mun ekki öll glatast í Evrópu en Rossi telur að ferðamannaiðnaðurinn tapi 5 til 10 milljörðum dollara, eða allt að 1.260 milljörðum kr. á hverri viku sem gosið stendur.
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira