Viðskipti innlent

Gengi Century Aluminum féll um 10 prósent

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um tíu prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er jafnframt mesta lækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Marel Food Systems, sem fór niður um 1,54 prósent.

Einungis ein viðskipti upp á 427 þúsund krónur standa á bak við gengisfall bréfa Century Aluminum en 21 upp á rúmar 103 milljónir króna í Marel Food Systems.

Gamla Úrvalsvísitalan styrktist engu að síður um 0,17 prósent og endaði í 221 stigi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×