Viðskipti innlent

Gengi bréfa í Century Aluminum rauk upp um rúm 60 prósent

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, rauk upp um 65,98 prósent í Kauphöllinni í dag á mjög sveiflukenndum degi. Gengi bréfa Bakkavarar ruku upp um 11,5 prósent og Össurar um 1,93 prósent.

Á sama tíma féll gengi bréfa hins færeyska Eik banka og Hampiðjunnar um 11,67 prósent. Bréf Icelandair Group fóru niður um 9,09 prósent og Marel Food Systems um 0,8 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 1,32 prósent og endaði í 218 stigum. Nýja vísitalan (OMXI6) hélst óbreytt í 648 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×