Gengi SPRON aldrei lægra 7. mars 2008 10:19 Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON.
Gengi hlutabréfa í SPRON hefur fallið um rúm fjögur prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Gengið stendur í 5,0 krónum á hlut og hefur það aldrei verið lægra. Einungis eitt félag hefur hækkað á sama tíma, Eik banki, sem hefur farið upp um 0,24 prósent. Þá hefur gengi Straums fallið um 3,2 prósent, Færeyjabanki um 2,82 prósent og Exista um 2,62 prósent. Flest önnur fyrirtæki í Kauphöllinni hafa fallið um allt að tvö prósent. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,24 prósent það sem af er dags og stendur vísitalan í 4.749. Hún hefur ekki verið lægri síðan um miðjan nóvember árið 2005. Lækkunin í Kauphöllinni er í samræmi við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í dag og í gær. Þannig féllu vísitölur í Bandaríkjunum í gær vegna ótta fjárfesta um áframhaldandi lausafjárþurrð og þrengingar á bandarískum fasteignamarkaði samfara auknum afskriftum þarlendra fjármálafyrirtækja. Þá féll Nikkei-vísitalan í Japan um 3,3 prósent. Evrópskar vísitölur hafa ekki farið varhluta af þróuninni en FTSE-vísitalan í Bretlandi hefur lækkað um 1 prósent, hin þýska Dax-vísitalan og Cac-40 vísitalan í Frakklandi um 1,1 prósent. Talsverð lækkun er sömuleiðis á Norðurlöndunum en C20-vísitalan í Danmörku hefur lækkað um 1,5 prósent frá upphafi viðskiptadagsins. Þetta er sama lækkun og á samnorrænu hlutabréfavísitölunni OMX40.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira