Fyrsta hækkun í Kauphöllinni í hálfan mánuð 12. febrúar 2008 16:29 Lýður og Ágúst Guðmundssynir, kenndir við Bakkavör.
Gengi hlutabréfa í Existu rauk upp um 7,3 prósent síðla dags í Kauphöllinni. Á eftir fylgdi FL Group, sem hækkaði um 6,33 prósent, og SPRON, sem hækkaði um rúm fjögur prósent. Öll fyrirtækin hafa legið í lægsta sögulega gildi þeirra síðustu daga. Á eftir fylgdu bankarnir, en gengi þeirra hækkaði um 2,3 til 3,5 prósent. Gengi bréfa í Eik banka, 365, Össur og Teymi lækkaði á sama tíma. Mesta lækkunin var á gengi færeyska bankans, sem féll um 3,3 prósent. Finnska tryggingafélagið Sampo, sem Exista á tæpan fimmtungshlut í, greindi frá því í dag að hluthafar fengju 1,2 evrur á hlut í arðgreiðslur. Það jafngildir því að Exista fær 13,8 milljarða króna í hagnað af hlut sínum og má vera að það spili inn í hækkun á gengi félagsins. Úrvalsvísitalan hækkaði um 3,24 prósent í dag og fór vísitalan yfir 5.000 stigin en hún endaði í 5.006 stigum. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem Úrvalsvísitalan hækkar í enda dags í hálfan mánuð en síðast hækkaði hún 30. janúar síðastliðinn.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira