Hagnaður Eyris dróst saman milli ára 8. febrúar 2008 11:50 Árni Oddur Þórðarson, framkvæmdastjóri Eyris Invest.
Eyrir Invest hagnaðist um 797 milljónir króna á síðasta ári samanborið við tæpa 1,6 milljarða krónur í hitteðfyrra. Eigið fé Eyris jókst um 51 prósent í fyrra með hagnaði og hlutafjáraukningu. Tekjur félagsins, sem eru kjölfestufjárfestar í Marel og Össuri, námu 1,2 milljörðum króna, sem er 42 prósent samdráttur á milli ára. Í tilkynningu frá Eyri til Kauphallarinnar segir, að frá stofnun Eyris Invest á miðju ári 2000 hafi árleg hækkun á innra virði hlutafjár numið 49,9 prósentum að meðaltali til samanburðar við 3,8 prósenta neikvæða árlega meðalávöxtun heimsvísitölu MSCI fyrir sama tímabil í evrum mælt. Eigið fé í árslok nam um 18.133 milljónum króna en það var 11.995 milljónir í upphafi ársins. Inn í tölunum er hlutafjáraukning upp á 5.382 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall í árslok var 39 prósent, skattskuldbinding 4 prósent af heildareignum og sjóðsstaða er sterk, að því er fram kemur í tilkynningunni. Þá segir ennfremur að allar eignir Eyris Invest séu bókfærðar á markaðsvirði og engir framvirkir samningar um hlutabréf opnir í lok uppgjörstímabilsins. Eyrir Invest, í samstarfi við Landsbanka Íslands og Candover, gerði vinveitt yfirtökutilboð í allt hlutafé hollensku iðnaðarsamsteypunnar Stork N.V. Skilyrðum tilboðsins var fullnægt 17. janúar 2008 en heildarverðmæti tilboðsins nemur 1,7 milljörðum evra. Samhliða seldu Eyrir Invest, Landsbanki Íslands og Marel sameiginlegan eignarhluta sinn í Stork N.V. Félögin byggðu upp á tveimur árum 43 prósenta eignarhlut í gegnum LME, sameiginlegt eignarhaldsfélag.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira