Skoðun

Samskiptin við dómsmálaráðherra

Jón Kaldal skrifar

Lögreglumennirnir suður með sjó sem vilja hætta ætla ekki að kveðja þegjandi og halla hurðinni varlega á eftir sér. Samskiptin við dómsmálaráðuneytið hafa verið afar stirð, segir í fréttatilkynningu sem Jóhann R. Benediktsson, fráfarandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, sendi frá sér í gær. Tilefnið er að hann ásamt þremur lykilmönnum embættisins hafa óskað eftir því að láta af störfum um næstu mánaðamót því þeir telja algjöran trúnaðarbrest hafa orðið milli sín og ráðuneytisins.

Öllu nákvæmari lýsingu á samskiptunum við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er að finna í Fréttablaðinu í dag, í viðtali við Eyjólf Kristjánsson, einn fjórmenninganna. Þar fer maður sem hefur fengið sig fullsaddan af viðmóti dómsmálaráðherra. Samskiptum embættis síns við ráðuneytið lýsir Eyjólfur sem stöðugu einelti ráðherrans og ráðgjafa hans þar sem málefnalegum forsendum og faglegum vinnubrögðum hafi verið kastað fyrir róða.

Þetta er ekki fallegur vitnisburður um stjórnvisku dómsmálaráðherra, svo ekki sé minnst á hæfileika hans til að eiga í mannlegum samskiptum. Skortur á því síðarnefnda kemur reyndar ekki á óvart í blaðamannastétt því Björn Bjarnason er eini maðurinn á Íslandi sem treystir sér ekki til að svara blaðamönnum í gegnum síma. Hann tekur aðeins við spurningum í tölvupósti.

Hvernig ráðherrann kýs að haga samskiptum sínum við annað fólk er þó smámál við hliðina á þeirri trú hans að allt sé í himnalagi í löggæslumálum landsins.

Hér er listi yfir helstu uppákomur á þeim vettvangi allra síðustu daga: Íbúar í Seljahverfi halda fjölmennan fund með lögreglunni í Ölduselsskóla. Þeir lýsa yfir áhyggjum af tíðum innbrotum í hverfinu og að lögregluþjónar sjáist þar sjaldan. Íbúasamtök Laugardals kvarta yfir öryggisleysi í Laugardal, að ógæfufólk haldi þar til afskiptalaust, því fylgi sprautunálar og áreiti en aldrei sjáist lögreglumenn við eftirlit, Bæjaryfirvöld í Grindavík átelja ríkisvaldið fyrir að standa ekki við gerða samninga um aukna löggæslu.

Lögreglufélag Reykjavíkur logar í illdeilum, lögreglumenn segja sig úr félaginu, meðlimir í sérsveit Ríkislögreglustjóra senda ályktun til fjölmiðla og lögreglumenn í fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra gera hið sama. Rótin að úrsögnunum og ályktununum er skiptar skoðanir á skipulagi löggæslumála milli Ríkislögreglustjórans og Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Allt þetta gerðist á rúmlega viku.

Það er að ýmsu leyti lýsandi fyrir stöðu löggæslumála landsins að á sama tíma og lögreglumenn á Suðurnesjum funduðu í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju í gær, var dómsmálaráðherra í Háskólanum á Bifröst að lýsa hugmyndum um stofnun þjóðaröryggisdeildar. Hlutverk slíkrar deildar væri meðal annars að koma í veg fyrir möguleg hryðjuverk og landráð með forvirkum rannsóknarheimildum.

Það þarf einhver að taka að sér að kippa dómsmálaráðherra inn í íslenskan hversdagsleika. Hann er örugglega ekki jafn spennandi í augum ráðherrans og alþjóðlegar njósnir, en hlýtur þó að eiga að vera í forgangi.








Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×