Hver greiðir fyrir breytingarnar? Svanfríður G. Bergvinsdóttir skrifar 31. október 2025 10:15 Leikskólakerfi og fæðingartíðni hafa verið fyrirferðarmikil umræðuefni í samfélaginu undanfarin misseri. Nauðsynlegt er að ræða þá þróun sem hefur orðið enda liggja miklir hagsmunir þar að baki. Eðlilega voru málefni barnafjölskyldna því á meðal þeirra stóru mála sem tekin voru fyrir á nýafstöðnu þingi ASÍ-UNG. Þingið lauk þeirri umfjöllun með ályktun. Það er skýrt af samtali við ungt fólk á vinnumarkaði að ákvarðanir opinberrar stjórnsýslu grafa verulega undan stöðu ungra foreldra og getu ungs fólks til þess að stofna fjölskyldu. Gríðarlegt álag á foreldra Álag á foreldra er gríðarlegt í nútíma samfélagi; tekjuskerðingar valda fjárhagskröggum í lengri tíma eftir barneignir, umönnunarbil að loknu fæðingarorlofi fram að leikskólavistun, viðvera í tómstundum barnanna, hækkandi leikskólagjöld, erfiðleikar við að komast inn á fasteignamarkað, himinháar upphæðir á leigumarkaði og svo má lengi telja. En þrátt fyrir þessar auknu kröfur til foreldra er enn ætlast til þess að þeir sem starfa á almennum vinnumarkaði sinni að lágmarki 8 tíma vinnu á dag, þróist í starfi, bæti við sig námi og þekkingu og haldi á einhvern hátt geðheilsunni. Stórgallað fyrirkomulag bitnar á lágtekjufolki Það liggur í augum uppi að starfsumhverfi sem hefur viðgengist á leikskólum er óviðunandi, en lausnin má ekki vera byggð á því að minnka möguleika ungra foreldra enn frekar. Það að krefja lægst launaða fólkið í samfélaginu, sem nauðsynlega þarf á öllum sínum vinnutíma að halda til að tryggja fjölskyldunni þak yfir höfuðið og mat á borðið, um hærri greiðslur til að halda sinni vistun er ekki sú þróun sem barnvænt samfélag á að taka. Gríðarlega margir vankantar eru á því fyrirkomulagi sem er boðað í rekstri leikskóla víða um land. Þeir bitna á þeim sem minnst mega við því. Aðför að jafnrétti og fjölskyldulífi Þróunin sem hefur orðið eykur ekki aðeins streitu og fjárhagsvandræði, heldur bítur hún í jafnréttisstöðu í þjóðfélaginu. Það er skýrt á öllum mælieiningum að konur taka frekar á sig umönnunarbyrðar og minnka jafnvel við sig vinnu, sem leiðir til lægri launa og lífeyrisgreiðslna seinna á lífsleiðinni. Karlar aftur á móti eru líklegri til að vinna mikla yfirvinnu til að bæta upp tekjutap heimilisins og missa því af tíma til að tengjast börnunum sínum og sinna þeim eins og þeir vilja. Þetta er staða sem ég hélt við myndum vera að fjarlægjast í nútímasamfélagi, en ekki stíga aftur inn í. Ungt fólk í erfiðri stöðu Staðan eins og hún er núna er einföld: Ungt fólk getur ekki átt börn og unnið fullan vinnudag án sterks baklands. Ungt fólk getur ekki eignast húsnæði fyrir fjölskylduna án hjálpar. Ungar konur eru að hverfa af vinnumarkaði. Ungir karlar hafa ekki tíma til að vera með börnunum sínum. Launalægstu einstaklingar samfélagsins sem þurfa mest á leikskólakerfinu að halda greiða meira fyrir þjónustuna en þau sem hafa meiri sveigjanleik í starfi og meira á milli handanna. Er þetta raunverulega það samfélag sem við viljum? Tillögur til úrbóta Að mati ungs launafólks er þó unnt að gera fjölda breytinga ,bæði á vinnumarkaði og í opinberri stjórnsýslu, til að koma á sanngjarnara kerfi. Þá er átt við kerfi sem auka jöfnuð, bæði kynja og tekjuhópa, og skapa raunverulega möguleika fyrir ungt fólk til að stofna fjölskyldu. Breytingarnar sem þing ASÍ-UNG leggur til eru: Vinnutímastytting á almennum markaði til að jafna leikinn við opinbera geirann og skapa raunhæft svigrúm fyrir foreldra. Aukinn sveigjanleiki í leikskólakerfinu, þannig að foreldrar geti raðað leikskólatíma í samræmi við raunverulegan vinnutíma og fjölskylduaðstæður. Jöfnun á leikskólagjöldum sem miðar að því að hærri gjöld bitni ekki á efnaminni foreldrum eða þeim sem eru rétt yfir lágmarkslaunum. Endurskoðun á fjárhagslegum stuðningi við foreldra sem kjósa að vera lengur heima með börnum sínum, með greiðslum sem endurspegla raunverulegan kostnað við leikskólapláss og tryggja áframhaldandi lífeyrisréttindi heimavinnandi foreldra. Breytingar á fæðingarorlofi sem miða að lengingu þess og að foreldrar fái að stjórna deilingu orlofs sín á milli, að tekjur í fæðingarorlofi séu ekki skertar, og að foreldrar fái að eyða fyrstu þremur mánuðum með barni saman í orlofi. Að betri starfskjör séu ekki keypt með skerðingu á öðrum kjörum. Kaffi- og matartímar eru mikilvægur partur af vinnudeginum. Það er mikilvægt bæði með tilliti til bættra kjara og meiri starfsánægju að fólk fái tíma og tækifæri til þess að mynda tengsl og taka hlé frá vinnu sinni. Þau réttindi eru ekki bætt upp með styttri vinnuviku eða hærri launum. Styðja þarf við foreldra í námi með sveigjanleika og fjárhagslegum úrræðum, svo barneignir verði raunhæfur kostur fyrir ungt fólk. Ég hvet ráðamenn og aðra áhugasama til að skoða ályktanir þings ASÍ-UNG og kynna sér sjónarmið ungs launafólks á Íslandi. Stjórn samtakanna er alltaf reiðubúin til samtals og að leita lausna sem skila árangri. Höfundur er formaður ASÍ-UNG. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðunargreinar. Senda grein Mest lesið Hópurinn sem myndi hagnast mest Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi: Hluti 1 af 4 Theodóra S. Þorsteinsdóttir Skoðun Raunveruleg svik við fullveldi þjóðarinnar Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Stríðsyfirlýsing SI Andri Reyr Haraldsson Skoðun Hverju breytir samþætting? Hulda Björk Finnsdóttir,Hákon Sigursteinsson Skoðun Ég hef borgað í mörg ár, samt skulda ég meira Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Kerfið er brotið. Kerfið á að vera brotið Anna Bergþórsdóttir Skoðun Notum þau verkfæri sem nýtast okkur best Kristín Linda Árnadóttir Skoðun Þörf karla fyrir heilbrigðisþjónustu eftir meðferð við krabbameini Hjalti Gunnlaugur Skúlason Skoðun Menntun fyrir framtíðina Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Nýr hugrakkur heimur Ástþór Ólafsson skrifar Skoðun Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi: Hluti 1 af 4 Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Notum þau verkfæri sem nýtast okkur best Kristín Linda Árnadóttir skrifar Skoðun Menntun fyrir framtíðina Inga Sæland skrifar Skoðun Kerfið er brotið. Kerfið á að vera brotið Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Þörf karla fyrir heilbrigðisþjónustu eftir meðferð við krabbameini Hjalti Gunnlaugur Skúlason skrifar Skoðun Hverju breytir samþætting? Hulda Björk Finnsdóttir,Hákon Sigursteinsson skrifar Skoðun Hópurinn sem myndi hagnast mest Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Raunveruleg svik við fullveldi þjóðarinnar Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun ESB og sjávarútvegurinn: Hver á að ráða hafinu við Ísland? Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Helstu hugtök í fasteignaviðskiptum Jónína Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Hvernig fækkum við mistökum hjá Skattinum? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Stríðsyfirlýsing SI Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Húrra fyrir konum – í miðjum Mottumars Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Kvótahopp og ESB Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvers vegna er umsóknin til Evrópusambandsins frá 2009 falin? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Jákvæð áhrif Kópavogsleiðarinnar Erla Þórisdóttir skrifar Skoðun Bergið – rými þar sem ungmenni fá stuðning á sínum forsendum Rut Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þrettán foreldrar á tíu árum Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Já eða Nei - Tilraun til að ramma inn umræðuna Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Borg sem leyfir öllum að blómstra Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Hormuz sund og Ísland Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Farsældarlög fyrir Bítlakynslóðina? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun ESB-umræðan leysir ekki efnahagsvandann Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Palme og Pedro Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Sameign þjóðarinnar — eða stærsta tilfærsla auðlinda í sögu Íslands? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Og svo eru flokkar sem byggja á reiði Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Óvirðing við sveitarstjórnarstigið Dýrunn Pála Skaftadóttir skrifar Skoðun Varðveisla Guðmundarlundar Beitir Ólafsson skrifar Skoðun Hvað gerist ef kosið verður að halda áfram viðræðum? Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Þörf karla fyrir heilbrigðisþjónustu eftir meðferð við krabbameini Hjalti Gunnlaugur Skúlason Skoðun
Skoðun Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi: Hluti 1 af 4 Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Þörf karla fyrir heilbrigðisþjónustu eftir meðferð við krabbameini Hjalti Gunnlaugur Skúlason skrifar
Skoðun Sameign þjóðarinnar — eða stærsta tilfærsla auðlinda í sögu Íslands? Vilhelm Jónsson skrifar
Þörf karla fyrir heilbrigðisþjónustu eftir meðferð við krabbameini Hjalti Gunnlaugur Skúlason Skoðun