Bresk eign Baugs og FL Group niður um sextán prósent 5. desember 2007 11:00 Maður í fötum frá Moss Bros. Gengi félagsins féll um rúm sextán prósent í dag.
Gengi hlutabréfa í bresku herrafatakeðjunni Moss Bros féll um rúm sextán prósent við upphaf viðskiptadagsins í bresku kauphöllinni í dag eftir að fyrirtækið sendi frá sér afkomuviðvörun þar sem fram kemur að ólíklegt sé að félagið nái markmiðum sínum á árinu. Unity Investments, félag í eigu Baugs, FL Group og breska fjárfestisins Kevin Stanfords, á nærri 30 prósenta hlut í keðjunni. Gengið jafnaði sig lítillega eftir því sem á leið en verðmiðinn á verslanakeðjunni stendur í 32,25 pensum á hlut sem jafngildir að markaðsvirðið hafi fallið um rúm 15 prósent það sem af er dagsins. Stjórnendur herrafatakeðjunnar höfðu reiknað með að tekjur verslunarinnar myndu nema tæpum 145 milljónum punda, jafnvirði rúmum 18,5 milljörðum íslenskra króna, og að rekstrarhagnaður fyrir skatta og gjöld myndi skila 3,8 milljónum punda. Félagið tapaði 800 þúsundum punda á fyrri hluta ársins. Breska dagblaðið Times hefur eftir sérfræðingi í smásöluverslun að afkomuviðvörunin komi ekki á óvart þar sem almennur samdráttur sé hjá breskum fataverslunum um þessar mundir. Philip Mountford, forstjóri herrafatakeðjunnar, segir í samtali við blaðið söluna síðastliðna tvo mánuði fyrirboða um það sem koma skuli. Salan á tímabilinu hafi dregist saman um 3,7 prósent síðastliðnar sjö vikur. Sé hins vegar litið til ársins í heild jókst salan um 1,1 prósent. Stefni því allt í dræmari sölu um jólin en reiknað hafði verið með, líkt og fram kemur í tilkynningu Moss Bros.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira