Kaupþing spáir 10 prósenta hagvexti 11. júní 2007 16:50 Greiningardeild Kaupþings spáir 10 prósenta hagvexti á fyrsta fjórðungi ársins en eitthvað minni vexti á næstu fjórðungum.
Greiningardeild Kaupþings spáir því að hagvöxtur verði við 10 prósent á fyrsta fjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Má vöxtinn einkum rekja til um 25 prósenta vaxtar í útflutningi á vöru og þjónustu á fjórðungnum. Greiningardeildin bendir á í Hálffimmfréttum sínum í dag að samkvæmt tölum frá Seðlabankanum hafi dregið verulega úr viðskiptahallanum á fyrsta fjórðungi ársins. Megi það einkum rekja til umtalsverðrar aukningar í útflutningi á vörum en útflutningsverðmæti áls hefur rúmlega tvöfaldast á milli ára. Þá hafa óreglulegir liðir eins og útflutningur á flugvélum jákvæð áhrif á útflutning, að mati deildarinnar. Samhliða þessu megi ætla að innflutningur hafi dregist saman um sex prósent á sama tíma. Þá segir að vísbendingar séu um að vöxtur einkaneyslu hafi dregist saman. Er bent á minni kortaveltu heimila, innflutning á neysluvörum og fólksbifreiðum því til sönnunar. Er það mat greiningardeildarinnar að gera megi ráð fyrir að vöxtur einkaneyslu á fyrsta ársfjórðungi frá sama tíma í fyrra hafi verið lítill sem enginn. Megi svo gera ráð fyrir því að fjárfestingar muni dragast hratt saman þegar líða taki á árið samhliða því sem stóriðjuframkvæmdum lýkur. Reiknar greiningardeildin með allt að 20 prósenta samdrætti í fjárfestingum á árinu. Greiningardeildin spáir því að hagvöxtur muni verða minni á næstu ársfjórðungum. Gangi það eftir muni það tefja fyrir stýrivaxtalækkunarferli Seðlabankans, að mati deildarinnar.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira