Vöruskipti óhagstæð um 148,6 milljarða í fyrra 21. febrúar 2007 09:00 MYND/GVA
Vöruskipti Íslands voru neikvæð upp á 148,6 milljarða krónur í fyrra en vöruskiptin voru óhagstæð um 105,7 milljarða krónur árið 2005, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Þetta jafngildir því að vöruskiptahallinn hafi aukist um 42,9 milljarða krónur á milli ára. Vöruskiptin í desember í fyrra voru óhagstæð um 13,1 milljarð króna en það er 1,9 milljarða aukning á milli ára. Vörur vöru fluttar út fyrir 242,7 milljarða krónur í fyrra en inn fyrir 391,3 milljarða, að sögn Hagstofu. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 42,9 milljörðum króna lakari árið 2006 en árið 2005. Í desember voru vörur fluttar út fyrir 20,1 milljarð króna en inn fyrir 33,3 milljarða, samkvæmt Hagstofunni. Heildarverðmæti vöruútflutnings í fyrra nam 25,5 milljörðum króna, sem er 11,7 prósenta aukning á verðmæti á milli ára. Sjávarafurðir voru 51,3 prósent alls útflutning og jókst verðmæti þeirra um 1 prósent á milli ára. Hlutur iðnaðarvara nam 38 prósent en þar af var ál stærsti hluturinn. Þá jókst sala á skipum og flugvélum umtalsvert á árinu, að sögn Hagstofu. Stærstur hluti innflutnings í fyrra voru hrá- og rekstrarvörur en hlutur þess nam 24,8 prósentum af öllum innflutningi.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Viðskipti innlent Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Viðskipti innlent Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Viðskipti innlent Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Viðskipti innlent Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Neytendur Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Fleiri fréttir KS við það að kaupa B. Jensen Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Bein útsending: Leiðir til að lækka vexti Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Spá hressilegri vaxtalækkun Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Þrjú ráðin til Tryggja Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Ísold ráðin markaðsstjóri Frá Bændasamtökunum til Samorku Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Nebraska heyrir sögunni til Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“ Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ Sjá meira