Tvöföldun á hagnaði Mosaic Fashions 28. september 2006 21:32
Tískuvörukeðjan Mosaic Fashions hf. skilaði 5,6 milljóna punda hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta samsvarar 738,4 milljónum íslenskra króna og er rétt rúm tvöföldun á hagnaði félagsins á milli ára. Á sama í fyrra nam hann 2,7 milljónum punda. Mestur hluti hagnaðarins varð til á öðrum ársfjórðungi. Hagnaðurinn varð mestur á öðrum fjórðungi ársins en hann var 4,8 milljónir punda eða tæplega 633 milljónir íslenskra króna. Þetta er ríflega tvöföldun á milli ára en á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 2,1 milljón punda eða tæpum 277 milljónum króna. Þá nam rekstrarhagnaður félagsins 18,7 milljónum punda eða eða 2,5 milljörðum íslenskra króna á fyrri helmingi ársins en það er 11 prósentum minna en á sama tíma í fyrra. Þá nam rekstrarhagnaður á öðrum ársfjórðungi 12 milljónum punda eða tæpum 1,6 milljörðum íslenskra króna. Það er 300.000 pundum eða 39,5 milljónum krónum minna en á sama tíma í fyrra. Í árshlutauppgjöri félagsins sem birt var í dag kemur m.a. fram að velta félagsins hafi numið 211,7 milljónum punda eða 27,9 milljörðum íslenskra króna á tímabilinu en það er 9 prósenta hækkun á milli ára. Þar af jókst veltan um 7 prósent á öðrum ársfjórðungi. Hækkunin er hins vegar mis mikil eftir verslunum. T.a.m. jókst velta í Coast um 34 prósent á fyrstu sex mánuðum ársins og um 17 prósent í verslunum Karen Millen en dróst saman um 5 prósent í Whistles og 3 prósent í Oasis.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira