Dagsbrún skipt upp 12. september 2006 11:06
Stjórn Dagsbrúnar hf. samþykkti á fundi sínum í dag að leggja til við hluthafafund að Dagsbrún verði skipt upp í tvö rekstrarfélög sem bæði verði skráð í Kauphöll Íslands. Félögin verði annars vegar fjölmiðlafélag, 365 hf. og hins vegar fjarskipta- og upplýsingatæknifélag, Teymi hf. Í tilkynningu frá Dagsbrún til Kauphallar Íslands segir að stofnað verði sérstakt félag utan um eignir sem ekki falla að kjarnastarfsemi félaganna tveggja og verði þær í minnihlutaeigu hvors um sig en með aðkomu þriðja aðila. Jafnframt sé stefnt að sölu fasteigna Dagsbrúnar bæði á Íslandi og í Bretlandi. Áætlað er að þessar aðgerðir lækki skuldsetningu félaganna tveggja um 13-14 milljarða króna. Þá segir að gangi tillögurnar eftir muni fjölmiðlafélagið verða rekið undir kennitölu Dagsbrúnar en nýtt félag verði stofnað um fjarskipta- og upplýsingatæknihlutann. Markmiðið með skiptingunni er að skerpa áherslur í rekstri dótturfélaga Dagsbrúnar hf., einfalda fjármagnsskipan þeirra og að gefa hluthöfum Dagsbrúnar hf. kost á að verða beinir aðilar að fjarskipta- og upplýsingatækni félaginu Teymi hf. Hluthafar í Dagsbrún hf. verða jafnframt hluthafar í Teymi hf. og eignast hluti í félaginu í sömu hlutföllum og þeir áttu í Dagsbrún hf. Unnið er að undirbúningi skráningar hlutabréfa Teymi hf. í Kauphöll Íslands og er ráðgert að skráningunni verði lokið fljótlega í kjölfar skiptingar Dagsbrúnar hf. Ari Edwald verður forstjóri 365 hf. og Árni Pétur Jónsson forstjóri Teymis hf. Viðar Þorkelsson fjármálastjóri Dagsbrúnar verður fjármálastjóri 365 hf. Viðskipti voru stöðvuð með bréf Dagsbrúnar í Kauphöll Íslands í morgun vegna fyrirhugaðra frétta frá félaginu en nú stendur yfir kynningarfundur Dagsbrúnar fyrir fjárfesta og fjölmiðla vegna málsins í Salnum í Kópavogi.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira