Tap hjá Flögu 31. ágúst 2006 16:31
Flaga Group tapaði 1,2 milljónum bandaríkjadala eða tæpum 83 milljónum íslenskra króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra tapaði félagið rétt rúmri einni milljón dala eða 69 milljónum króna á núvirði. Tap félagsins á öðrum fjórðungi ársins nemur 368.000 dölum eða rúmum 25,4 milljónum íslenskra króna. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kemur fram að tekjur Flögu námu 7,9 milljónum dala eða rúmum 546 milljónum íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi sem er 9 prósenta samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra. Tekjur á fyrri helmingi ársins námu 15,3 milljónum dala eða rúmum einum milljarði króna, sem sömuleiðis er 9 prósenta samdráttur á milli ára. Þá kemur fram að markmiðum félagsins um lækkun kostnaðar hafi verið náð og nemur lækkunin 14 prósentum. EBITDA framlegð Flögu nam 196.000 dölum eða 13,5 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi en inni í því sé falinn kostnaður vegna skipulagsbreytinga er nemur 140.000 dölum eða 9,7 milljónum íslenskra króna. Á fyrri helmingi ársins var framlegðin neikvæð um 142.000 dali eða 9,8 milljónir króna. Innifalinn er kostnaður vegna skipulagsbreytinga er nemur 376.000 eða 26 milljónum króna sem færður er með reglulegum gjöldum í samræmi við reikningsskilastaðla. Í tilkynningunni segir ennfremur að flutningur Flögu til Kanada og Evrópu sé að mestu lokið með góðum árangri þar sem tekist hafi að ná fram verulegri lækkun kostnaðar eins og stefnt var að. Þá segir að nýjar vörur frá Flögu séu nú á lokastigi til kynningar á markaði og fyrirsjáanlegt að reglulegar uppfærslur hugbúnaðar verði tíðari en áður.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira