Tap hjá Olíufélaginu 31. ágúst 2006 11:46
Olíufélagið ehf. og dótturfélög þess, Olíudreifing og Egó, tapaði 62,4 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er viðsnúningur hjá félaginu en það hagnaðist um 223,9 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Tapið má rekja til óhagstæðrar gengisþróunar og aukins fjármagnskostnaðar. Í tilkynningu frá félaginu til Kauphallar Íslands kemur fram að rekstrartekjur samstæðu Olíufélagsins hafi numið rúmum 11,7 milljörðum króna samanborið við rúmlega 9,9 milljarða krónur á sama tíma í fyrra. Hreinar rekstrartekjur námu tæplega 2,9 milljörðum króna og er það 381 milljón krónu meira en fyrir ári. Rekstrargjöld án afskrifta og leigugjalda nema rúmum 1,7 milljörðum króna og er það 111 milljóna króna hækkun frá síðasta ári. Þá voru fjármagnsliðir neikvæðir um 894 milljónir króna á tímabilinu en þeir voru jákvæðir um 2 milljónir króna í fyrra. Þá kemur fram í tilkynningunni að bókfært verð eigna félagsins hafi numið tæpum 24 milljörðum króna í lok júní en það var rúmar 11,6 milljarðar króna í fyrra. Eigið fé Olíufélagsins nam í júnílok rúmum 6,3 milljörðum króna samanborið við tæplega 3,7 milljarða í lok júní í fyrra. Í hálfs árs uppgjöri Olíufélagsins kemur fram að rekstur félagsins hafi verið í samræmi við rekstraráætlanir á fyrri helmingi ársins að undanskildum áhrifum sem þróun gengismála hafi haft í för með sér. Gert er ráð fyrir að afkoma félagsins verði í samræmi við áætlanir á seinni hluta ársins ef ekki komi til neinar meiriháttar breytingar á ytri aðstæðum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Ríkið gæti niðurgreitt losun flugfélaganna um þrjá milljarða Viðskipti innlent Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna Atvinnulíf Már nýr meðeigandi hjá Athygli Viðskipti innlent Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Viðskipti erlent „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ Atvinnulíf Lokuðu Ítalíu á Frakkastíg eftir mótmæli Eflingar Viðskipti innlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Viðskipti innlent Sjarminn af sérverslun lifi góðu lífi Viðskipti innlent „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Már nýr meðeigandi hjá Athygli Ríkið gæti niðurgreitt losun flugfélaganna um þrjá milljarða Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Lokuðu Ítalíu á Frakkastíg eftir mótmæli Eflingar Sjarminn af sérverslun lifi góðu lífi Alma til Pipars\TBWA Uppsagnir hjá Veitum Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Sjá meira