Besta afkoma í sögu SPH 25. ágúst 2006 14:03 Sparisjóður Hafnarfjarðar. Mynd/Stefán
Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH) skilaði 311 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 69,6 prósenta aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Í tilkynningu frá SPH til Kauphallar Íslands kemur fram að hagnaður fyrir skatta hafi numið 370 milljónum króna en það er 156 milljónum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Tekjur af hlutabréfum og öðrum eignarhlutum voru 268 milljónir króna en voru 115 milljónir á sama tímabili 2005 og hækkuðu um 132,5 prósent á milli ára. Þá hækkuðu þjónustutekjur úr 195 milljónum króna í 358 milljónir króna eða um 84,1 prósent, að því er fram kemur í tilkynningunni. Gengishagnaður af innlendum og erlendum veltuverðbréfum nam 90 milljónum króna samanborið við 162 milljónir króna á sama tímabili á síðasta ári. Laun og launatengd gjöld námu 431 milljónum króna á tímabilinu en voru 444 milljónir króna á sama tímabili 2005, drógust þau saman um 3 prósent á milli tímabila. Þá nam afskriftareikningur útlána 549 milljónum króna í lok júní en það svarar til 1,3 prósenta af útlánum og veittum ábyrgðum en hlutfallið um síðustu áramót var 1,6 prósent. Framlag í afskriftareikning útlána endurspeglar ekki endilega töpuð útlán, heldur er um að ræða fjárhæð sem lögð er til hliðar til að mæta hugsanlegum útlánatöpum, að því er segir í tilkynningunni. Heildareignir SPH í lok júní námu tæpum 53,8 milljörðum króna og hafa þær aukist um rúman fimmtung frá áramótum. Útlán SPH námu 39,4 milljörðum króna á tímabilinu og er það aukning um 19 prósent frá áramótum. Þá nam eigið fé SPH 4,1 milljarði króna í júnílok og hefur það vaxið um 324 milljónir króna frá áramótum eða um 8,1 prósent. Eiginfjárhlutfall SPH nam 11,3 prósentum í lok tímabilsins en það var 15,1 prósent um síðustu áramót. Í tilkynningunni segir ennfremur að rekstrarniðurstaðan á fyrstu sex mánuðum ársins hafi verið ein sú besta á fyrri helmingi árs í rúmlega 103 ára sögu SPH og geri stjórnendur sjóðsins ráð fyrir góðri afkomu hans á árinu í heild.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira