Endurfjármögnunarþörfin tryggð 24. ágúst 2006 15:02
Glitnir hefur á þessu ári gefið út skuldabréf fyrir 3 milljarða evrur, jafnvirði tæpra 272 milljarða íslenskra króna, og með því tryggt endurfjármögnun bankans fyrir næsta ár. Í tilkynningu frá bankanum til Kauphallar Íslands kemur fram að skuldir Glitnis (móðurfélagsins) með gjalddaga á næsta ári hafi verið um 2,7 milljarðar evra, um 242 milljarðar króna, en vegna sterkrar lausafjárstöðu undanfarið hefur bankinn keypt til baka hluta þeirra skuldabréfa. Eigi bankinn nú lausafé til að mæta öllum gjalddögum skulda á næsta ári. Þá segir að Glitnir hafi lagt ríka áherslu á að styrkja lausafjárstöðu bankans á þessu ári til að tryggja endurfjármögnun næsta árs og hafi vinnan gengið mjög vel við óstöðugar markaðsaðstæður. Handbært fé Glitnis um þessar mundir nemur um 2,5 milljörðum evra, 225 milljörðum króna, sem jafngildir 111 prósentum af fjármögnunarþörf næstu sex mánaða. Handbært fé og auðseljanlegar fjáreignir nema 130 prósentum af fjármögnunarþörf næstu 12 mánaða. Endurspegli þessi hlutföll sterka lausafjárstöðu bankans um þessar mundir, að því er segir í tilkynningunni. Haft er eftir Tómasi Kristjánssyni, framkvæmdastjóra Fjármálasviðs Glitnis, að eftir að bankinn kynnti niðurstöður annars ársfjórðungs hafi orðið vart við verulega aukinn áhuga fjárfesta. Sé ljóst að þau lánakjör sem bankinn njóti um þessar mundir séu áhugaverð fyrir fjárfesta, sérstaklega þá sem þekkja vel til Glitnis.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira