Tap hjá Dagsbrún á fyrri helmingi ársins 16. ágúst 2006 16:57 Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar.
Dagsbrún tapaði rúmum 1,5 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra skilaði félagið 321 milljóna króna hagnaði. Tap félagsins á öðrum ársfjórðungi nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Tekjur félagsins námu hins vegar tæpum 20,2 milljörðum króna á sama tímabili og er það 188 prósenta aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Í uppgjöri félagsins kemur fram að gengistap vegna erlendra skulda og afleiðusamningar þeim tengdir auk verðbólguskots séu neikvæð um 910 milljónir króna. Þá segir ennfremur að gengisþróunin hafi nú gengið til baka og nemi hún 400 milljónum króna. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir afskriftir, fjármagnsgjöld og skatta nam tæpum 2,1 milljarði króna, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu til Kauphallar Íslands. Í uppgjöri Dagsbrúnar kemur fram að einsskiptikostnaður hafi verið gjaldfærður vegna lokunar á prentsmiðju í Bretlandi að upphæð 184 milljónir króna. Upphafskostnaður vegna fríblaðsins Nyhedsavisen í Danmörku, SKO og Mömmu nam 125 milljónum á sama tímabili. Dagsbrún tók yfir tvö stór félög á tímabilinu að verðmæti um 27,5 milljarðar króna. Erlend starfsemi félagsins velti rúmlega 6,9 milljörðum króna á tímabilinu. Í tilkynningunni kemur fram að afkoma fjölmiðlahluta félagsins hafi verið lakari en gert hafi verið ráð fyrir vegna minni auglýsingasölu í ljósvakamiðlum og taprekstrar DV. Þegar hafi verið gripið til aðgerða. Þá var afkoma vélbúnaðarhluta Kögunar lakari en búist hafði verið við. Aðallega vegna rekstrar Kerfis AB í Svíþjóð og Kerfis AS í Danmörku, en hörð samkeppni ríkir á þessum mörkuðum. Jafnframt voru gjaldfærðar starfslokagreiðslur við nokkra stjórnendur innan Kögunarsamstæðunnar að upphæð 40 milljónir króna. Haft er eftir Gunnari Smára Egilssyni, forstjóra Dagsbrúnar, að annar ársfjórðungur hafi verið sá viðburðaríkasti í sögu félagsins til þess. Sé unnið að skipulagsbreytingum, samþættingu rekstrareininga og endurmats á starfsemi allra fyrirtækja samstæðunnar í kjölfar kaupa á fyrirtækjunum. „Stjórnendur Dagsbrúnar telja að afkoma félagsins eigi að vera betri en niðurstöður fyrri hluta ársins sýna. Þegar hefur verið brugðist við ákveðnum þáttum og áfram verður unnið að því að bæta kostnaðarhlutföll í rekstrinum. Þetta verður meginverkefni seinni hluta ársins," segir Gunnar Smári í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Sjá meira