Landsvirkjun gefur út skuldabréf 12. júlí 2006 17:05 Landsvirkjun.
Landsvirkjun hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir evra, jafnvirði 14,4 milljarða íslenskra króna, undir rammasamningi fyrirtækisins. Lánið er til 20 ára. Með útgáfunni er fjármögnun Landsvirkjunar á árinu nærri lokið en einungis er eftir að fjármagna sem svarar til um 1,6 milljarða króna. Heildarfjárþörf Landsvirkjunar er 45 milljarðar króna á árinu. Umsjónaaðilar útgáfunnar er franski bankinn IXIS og er fjárfestirinn evrópskur. Samhliða þessum viðskiptum er verið að ljúka útgáfu á 50 milljóna evru, jafnvirði rúmlega 4,7 milljarða króna, skuldabréfs til 10 ára. Kjörin eru samkvæmt útgefnum viðmiðum og er umsjónaraðilinn skandínavískur. Skuldabréfið er einnig gefið út undir EMTN rammasamning Landsvirkjunar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun til Kauphallarinnar. Þá kemur fram að fjármögnun Landsvirkjunar á árinu hafi gengið vel og hafi kjör fyrirtækisins verið í samræmi við markmið en fjármögnunin hefur að mestu farið fram á Evrópumarkaði. Fyrir utan fjármögnun ársins hefur Landvirkjun aðgang að veltiláni að 400 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði tæpra 29,8 milljarða króna, sem tekið var í lok síðasta árs og er ætlað að styðja enn frekar við lausafjárstöðu fyrirtækisins.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira