Hagnaður FL Group 5,8 milljarðar króna 18. maí 2006 17:02
Hagnaður FL Group nam rúmum 5,8 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins samanborið við 25 milljónir króna árið á undan. Fyrir skatta nam hagnaður samstæðunnar rúmum 6,6 milljörðum króna. Árið á undan nam hagnaðurinn 25 milljónum króna. Í tilkynningu frá FL Group segir að arðsemi eiginfjár á tímabilinu hafi numið 33,8 prósentum. Afkoma af fjárfestingastarfsemi nam 9,97 milljörðum króna fyrir skatta en á sama tímai nam árstíðabundið tap rekstrarfélaga að frádregnum samrunakostnaði hjá flugfélaginu Sterling rúmum 2,5 milljörðum króna. Að meðtöldum samrunakostnaði nam tapið rúmum 3,3 milljörðum króna. Þá námu heildareignir félagsins í lok ársfjórðungsins 188,1 milljarði króna en það er 55,5 milljarða króna aukning frá ársbyrjun. Ár fyrstu fjórum mánuðum ársins lauk FL Group kaupum á danska lággjaldaflugfélaginu Sterling og gekk frá samningum um sölu á Ferðaskrifstofu Íslands og Bílaleigu Flugleiða. Þá er stefnt að því að skrá Icelandair Group í Kauphöll Íslands. Haft er eftir Hannesi Smárasyni, forstjóra FL Group, að afkoma félagsins hafi verið afar góð. „Ég er ánægður með að sjá fjárfestingastarfsemina skila 10 milljarða króna hagnaði þrátt fyrir óróleika á innlendum fjármálamörkuðum.... Umbreyting Sterling gengur vonum framar og við erum ánægðir að sjá gang mála, sérstaklega þegar tekið er tillit til hinnar gríðarlegu árstíðarsveiflu í rekstri félagsins," segir hann í tilkynningu.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Ríkið gæti niðurgreitt losun flugfélaganna um þrjá milljarða Viðskipti innlent Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna Atvinnulíf Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Viðskipti erlent „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ Atvinnulíf Lokuðu Ítalíu á Frakkastíg eftir mótmæli Eflingar Viðskipti innlent Már nýr meðeigandi hjá Athygli Viðskipti innlent Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Viðskipti innlent Sjarminn af sérverslun lifi góðu lífi Viðskipti innlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Már nýr meðeigandi hjá Athygli Ríkið gæti niðurgreitt losun flugfélaganna um þrjá milljarða Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Lokuðu Ítalíu á Frakkastíg eftir mótmæli Eflingar Sjarminn af sérverslun lifi góðu lífi Alma til Pipars\TBWA Uppsagnir hjá Veitum Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Sjá meira