Glitnir sækir 500 milljónir dala 15. nóvember 2006 07:45
Glitnir hefur gefið út í Bandaríkjunum skuldabréf fyrir 500 milljónir bandaríkjadala eða sem nemur 33,5 milljörðum íslenskra króna. Útgáfan fór fram síðasta föstudag, en skuldabréfin eru á gjalddaga í janúar árið 2011. Kjör bréfanna eru 44 punktum yfir bandarískum millibankavöxtum (LIBOR). Um er að ræða fyrstu opinberu skuldabréfaútgáfu bankans síðan í febrúar þar sem ekki er um að ræða víkjandi útgáfu. „Á þessu ári hefur Glitnir gefið út tvær opinberar víkjandi útgáfur til styrkingar á eiginfjárstöðu bankans en meirihluti annarrar fjármögnunar hefur verið í formi einkaútgáfna. Í lok ágúst tilkynnti Glitnir að bankinn hefði tryggt endurfjármögnun fyrir árið 2007. Mikill áhugi hefur verið undanfarið meðal bandarískra fagfjárfesta á skuldabréfum bankans og mun útgáfan nú styðja við frekari vöxt bankans á næsta ári sem og að viðhalda sterkri lausafjárstöðu hans,“ segir í tilkynningu bankans. Útgáfan nú er jafnframt fyrsta skuldabréfaútgáfa Glitnis undir nýjum MTN rammasamningi bankans um skuldabréfaútgáfu í Bandaríkjunum. JP Morgan Securities hafði umsjón með gerð rammasamningsins fyrir Glitni, en umsjón með útgáfunni nú höfðu ásamt JP Morgan, Merrill Lynch og Wachovia Capital Markets.
Viðskipti Mest lesið „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Atvinnulíf Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Samstarf X-ið hans Musk virðist liggja niðri Viðskipti erlent Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Viðskipti innlent Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Viðskipti erlent Landsbankinn og Arion lækka vexti Neytendur Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Af og frá að slakað sé á aðhaldi Ráðinn markaðsstjóri Bónuss Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd Of snemmt að segja til um hvort vaxtalækkunarferlinu sé lokið í bili „Ég held að þú þurfir ný gleraugu“ Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Vaxtalækkunarferlið heldur áfram Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða Tólf milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira