Baugur síður en svo hættur 20. júlí 2005 00:01
Baugur er síður en svo hættur að fjárfesta, þrátt fyrir ummæli forstjóra félagsins um að Baugur myndi taka sér hlé. Baugur keypti nýverið 30 prósenta hlut í danska fasteignafélaginu Keops og stefnir á að eignast 30-40 prósenta hlut í bresku tískuvöruverslanakeðjunni Jane Norman, en viðræður eru á lokastigi. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefur sagt að Baugur myndi draga sig í hlé hvað fjárfestingar varðaði á næstunni vegna yfirvofandi dómsmáls á hendur honum og fimm öðrum. Þrátt fyrir þessi ummæli hefur Baugur keypt 30% hlut í danska fasteignafélaginu Keops fyrir um sex milljarða íslenskra króna. Að sögn danskra fjölmiðla hefur Baugur hug á að eignast stærri hlut í félaginu. Skarphéðinn Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri Norrænna fjárfestinga Baugs, segir að Jón Ásgeir hafi aðeins átt við að Baugur myndi draga sig í hlé hvað varðaði fjárfestingar eins og Sommerfield-samningurinn gekk út á, eða yfirtöku. Skarphéðinn sagði Baug einungis vera að kaupa sig inn í skráð hlutafélag og að Baugsmenn myndu halda ótrauðir áfram í slíkum viðskiptum. Baugur myndi hins vegar taka sér frí frá því að taka fyrirtæki af markaði með skuldsettum yfirtökum, og það hafi Jón Ásgeir átt við. Þá sagði Skarphéðinn að Baugur hygðist auka fasteignakaup sín í Danmörku, á Bretlandi og á Íslandi á næstunni. Ástæðan væri einfaldlega að þrátt fyrir hátt fasteignaverð að undanförnu teldu þeir að það gæti enn hækkað. Og það er ýmislegt fleira í gangi, eins og viðræður Baugs um kaup á 30-40% hlut í bresku tískuvöruverslanakeðjunni Jane Norman sem eru á lokasprettinum, að því er kemur fram í breska blaðinu The Time. Kaupverðið er rúmar 100 milljónir punda, eða sem nemur um 11,4 milljörðum króna. Jane Norman rekur tæpar 100 verslanir víða um Bretland og því óhætt að segja að Baugur sé síður en svo hættur eða sé eitthvað að slaka á í kaupum á fyrirtækjum í kjölfar ákæranna á hendur forstjóranum og fimm öðrum tengdum fyrirtækinu.
Innlent Viðskipti Mest lesið Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Sjá meira