Sport

Öruggur sigur Keflvíkinga

Keflvíkingar tóku í kvöld forystu í einvígi sínu gegn grönnunum í Grindavík í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik. Keflvíkingar höfðu mikla yfirburði í leiknum og unnu stóran sigur, 101-80, eftir að hafa leitt með 10 stigum í hálfleik. Bandaríkjamennirnir í liði Keflavíkur áttu frábæran leik, Anthony Glover skoraði 33 stig ásamt því að taka 11 fráköst og Nick Bradford setti 26 stig, tók 16 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Auk þeirra var Gunnar Einarsson drjúgur og skoraði 19 stig Í liði Grindavíkur var Jeffrey Boschee atkvæðamestur og skoraði 25 stig. Darrell Lewis setti 20 stig og Terrell Taylor 12.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×