Sport

Jóni fatast flugið í kosningunni

Netkosning fyrir Stjörnuleik Evrópu í körfuknattleik er enn í fullum gangi á heimasíðu FIBA, körfuknattleikssambands Evrópu. Jón Arnór Stefánsson, leikmaður Dynamo St. Petersburg í Rússlandi, var lengi vel í efsta sæti kosningarinnar en nú hafa Ömer Onan og Damir Mrsic, leikmenn hjá tyrkneska liðinu Fenerbahce siglt fram út kappanum. Íslenskir körfuboltaunnendur, sem vilja styðja Jón Arnór í valinu, geta farið á fibaeurope.com og veitt honum sitt atkvæði. Stjörnuleikurinn fer fram í Limassol í Kýpur 14. apríl næstkomandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×