Sport

Sjö lið örugg í úrslit

Sjö lið eru örugg í 8-liða úrslit Íslandsmótsins í körfuknattleik en Haukar og Grindavík berjast um áttunda sætið. Haukar komast í úrslitakeppnina vinni þeir Njarðvík og ef KR sigrar Grindavík. Grindvíkingar tryggja sér sæti í úrslitakeppninni með sigri á KR og þá skipta úrslitin í leik Njarðvíkur og Hauka ekki máli. Aðrir leikir í síðustu umferðinni eru: Fjölnir – Keflavík, Skallagrímur – KFÍ, Snæfell – Tindastóll og Hamar/Selfoss – ÍR. Leikjum kvöldsins verða gerð skil í íþróttaþættinum Olíssporti sem verður á Sýn klukkan 22 í kvöld. Keflavík sigraði Grindavík með 78 stigum gegn 62 í 1. deild kvenna í gærkvöldi. Birna Valgarðsdóttir skoraði 19 stig fyrir Keflavík en María Guðmundsdóttir 15 fyrir Grindavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×