Samherji selur í hraðfrystistöð 14. júní 2004 00:01 "
Markmiðið með kaupunum er að tryggja framgang fyrirtækisins og áframhaldandi rekstur," segir Björn Ingimarsson, formaður stjórnar Fræs ehf. og sveitarstjóri Þórshafnar á Langanesi, en félagið hefur keypt ráðandi hlut í Hraðfrystistöð Þórshafnar af Samherja. Fræ er í eigu bæjarfélagsins en Björn segir ekki stefnumál bæjarfélagsins að standa í atvinnurekstri. "Það er ekki stefnan að eiga áfram ráðandi hlut í Hraðfrystistöðinni og sjá um rekstur fyrirtækisins," segir Björn og bætir því við að viðræður verði við fjárfesta sem vænlegir séu fyrir þennan rekstur. "Hagsmunir okkar og hugsanlegra fjárfesta verða að fara saman og ég sé ekkert því til fyrirstöðu." Hraðfrystistöðin er að mati Björns mikilvæg fyrir bæjarfélagið. "Þetta er stærsti vinnuveitandinn og margföldunaráhrif fyrirtækisins á atvinnulíf bæjarins eru mikil. Við viljum hafa hönd í bagga með að tryggja framgang fyrirtækisins og þess vegna tókum við þá ákvörðun að kaupa ráðandi hlut í því." Hlutur Fræs ehf. er upp á 34,2% en nafnvirði hans er um 168 milljónir.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Viðskipti innlent Hótel Selfoss verður Marriott hótel Viðskipti innlent Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ Atvinnulíf JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Viðskipti innlent „Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ Atvinnulíf Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Viðskipti erlent Olíufélögin hafi hætt við að elta Costco Neytendur Mælir ekki með „TikTok-sparnaðarleiðunum“ Neytendur Strætómiðinn dýrari Neytendur Sorpa undirbýr sig fyrir þjónustufall Neytendur Fleiri fréttir JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Nýskráning fólksbíla dróst saman um rúm fjörutíu prósent Kaupsamningar nærri helmingi fleiri en í fyrra Verkalýðshreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitingastöðum Slippurinn allur að sumri loknu „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Sjá meira