Viðskipti erlent
299 300 301 302 303 304 305 306 307 … 334 ›
Heimurinn er að losna undan taki kreppunnar Samkvæmt nýrri hagspá Alþjóðagjaldeyrisjóðsins (AGS) er kreppan nú að losa um tak sitt á alheimshagkerfinu og bati, þó veikur sé, er í sjónmáli. Viðskipti erlent 9.7.2009 11:15
Sænsk herrasetur til sölu á tombóluverði Fjármálakreppan og lágt gengi sænsku krónunnar hefur gert það að verkum að nú er hægt að kaupa sænsk herrasetur (herregård) á tombóluverði. Dæmi eru um að verð á þeim hafi fallið niður í 60 milljónir kr. sem er svipað og kostar að kaupa fjögurra herbergja íbúð í Kaupmannahöfn. Viðskipti erlent 9.7.2009 11:05
AGS fær 10 milljarða dollara lán frá Kanada Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur gengið frá lánasamningi við stjórnvöld í Kanada um lán upp á allt að 10 milljarða dollara eða tæplega 1.290 milljarða kr. Viðskipti erlent 9.7.2009 08:55
Tap Alcoa minna en væntingar voru um Bandaríski álrisinn Alcoa, sem m.a. á Fjarðarál, skilaði minna tapi á öðrum ársfjórðungi en væntingar voru um. Tapið nam 454 milljónum dollara eða um 59 milljörðum kr. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður af rekstrinum hinsvegar 546 milljónir dollara. Viðskipti erlent 9.7.2009 08:22
Líkir hlutabréfum SAS við Hubba Bubba tyggjó Markaðsstjóri flugfélagsins Ryanair á Norðurlöndunum, Erik Elmsätser, líkir hlutabréfum í SAS flugfélaginu við Hubba Bubba tyggjó. Hann segir að um leið og hluturinn í SAS fer niður í sama verð og stykkið af Hubba Bubba muni Lufthansa slá til og kaupa SAS. Viðskipti erlent 8.7.2009 14:34
Stal viðskiptaforriti Goldman Sachs Fyrrum starfsmaður fjárfestingabankans Goldman Sachs gæti orsakað gríðarlegt tap hjá bankanum þar sem hann stal mikilvægum viðskiptahugbúnaði í eigu bankans. Bankinn gæti hugsanlega tapað hundruðum milljóna króna komist gögnin ekki aftur í vörslu bankans. Viðskipti erlent 8.7.2009 14:01
Iðnaðarframleiðslan langt umfram væntingar í Þýskalandi Iðnaðarframleiðsla í Þýskalandi jókst um 3,7% í maí síðastliðnum frá fyrri mánuði og hefur ekki aukist jafn mikið í einum mánuði í 16 ár. Viðskipti erlent 8.7.2009 12:43
Veitingahúsaveldi Gordons Ramsay var á barmi gjaldþrots Veitingahúsaveldi ofurkokksins og Íslandsvinarins Gordons Ramsay riðaði á barmi gjaldþrots í vor. Ramsay neyddist til að skjóta töluverðum upphæðum af persónulegum auðæfum sínum inn í reksturinn til að halda honum á floti. Viðskipti erlent 8.7.2009 09:49
Seldi fyrstu samuræ-bréfin eftir að Kaupþing eyðilagði markaðinn Barclays bankinn hefur gefið út og selt fyrstu samuræ-bréfin í ár en Kaupþing eyðilagði markaðinn með slík bréf í október þegar Kaupþing varð fyrsti evrópski bankinn sem gat ekki borgað af sínum samuræ-bréfum. Viðskipti erlent 8.7.2009 08:41
Smásala í Bandaríkjunum dróst saman í júní Smásala í Bandaríkjunum dróst töluvert saman í júní. Ástæðan er rakin til slæms veðurs og minni kaupgetu almennings í Bandaríkjunum en fyrri ár. Viðskipti erlent 7.7.2009 23:55
Fitch setur lánshæfi Kaliforníu í sama flokk og Ísland Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur sett lánshæfismatið á langtímaskuldum Kaliforníu á svipaðar slóðir og Ísland, það er BBB eða aðeins tveimur þrepum frá ruslflokki. Viðskipti erlent 7.7.2009 11:09
Farþegafjöldi SAS hefur hrapað um tæp 13% í ár Farþegafjöldinn hjá SAS flugfélaginu minnkað um 12,9% á fyrri helming ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Fækkunin nemur 2,4 milljónir farþega hjá félaginu frá áramótum. Viðskipti erlent 7.7.2009 10:54
Alþjóðabankinn: Lausn á kreppunni ekki handan við hornið Lausn á efnahagskreppunni er ekki handan við hornið. Þetta eru skilaboð bankastjóra Alþjóðabankans til leiðtoga helstu iðnríkja heims sem nú eru komnir saman til fundar á Ítalíu. Viðskipti erlent 6.7.2009 12:30
Forstjórar þora ekki lengur að sjást á golfvellinum Græðgin meðal forstjóra heimsins fyrir, á meðan og eftir fjármálakreppuna hefur gefið þeim slæma ímynd, svo slæma að nú þora margir þeirra ekki lengur að láta sjá sig á golfvellinum. Viðskipti erlent 6.7.2009 10:26
Rio Tinto selur eignir til að létta á skuldum Námurisinn Rio Tinto, sem m.a. rekur álverið í Straumsvík, hefur selt pökkunarfyrirtækið Food Americas til Bemis fyrir 1,2 milljarð dollara eða um 152 milljarða kr. Viðskipti erlent 6.7.2009 09:42
Heimsmarkaðsverð á olíu undir 65 dollara Heimsmarkaðsverð á olíu féll í morgun undir 65 dollara á tunnuna og er þetta lægst verð á olíunni undanfarnar fimm vikur. Viðskipti erlent 6.7.2009 08:17
Gjaldþrot á hverjum degi í viku 52 bankar í Bandaríkjunum hafa orðið gjaldþrota á árinu en sjö bankar lýstu sig gjaldþrota í síðustu viku. Viðskipti erlent 5.7.2009 14:02
Yfir 50 bankar í Bandaríkjunum orðnir gjaldþrota í ár Tala þeirra banka í Bandaríkjunum sem orðið hafa gjaldþrota í ár nemur nú 52 eftir að sjö bankar lýstu sig gjaldþrota í síðustu viku. Þetta eru meir en helmingi fleiri bankagjaldþrot vestan hafs í ár en á öllu árinu í fyrra. Viðskipti erlent 5.7.2009 10:59
Kaupþing fékk greidda 4 milljarða frá JJB Sports Kaupþing hefur fengið greitt 20 milljón punda lán, eða rúmlega 4 milljarða kr., frá bresku sportvöruverslanakeðjunni JJB Sports og er þar með komið að mestu út úr rekstri keðjunnar. Viðskipti erlent 5.7.2009 10:30
Lloyds og RBS verða ekki seldir í bráð Stjórnendur eignarumsýslufélagsins sem fer með hlut breska ríkisins í Royal Bank of Scotland og Lloyds segir að hlutur hins opinbera í bankanum verði ekki seldur í bráð. Viðskipti erlent 5.7.2009 08:00
FIH bankinn fær danska ríkisábyrgð að 1.200 milljörðum FIH bankinn í Danmörku, sem nú er í eigu íslenska ríkisins, hefur fengið ríkisábyrgð frá danska ríkinu. Danska fjármálaeftirlitið tilkynnti þetta í dag en um er að ræða rammasamning upp á allt að 50 milljarða danskra kr. eða um 1.200 milljarða kr. Viðskipti erlent 3.7.2009 15:43
Eignahluturinn í Sjælsö er í höndum þrotabús Samson Eignahlutur sá í danska fasteignafélaginu Sjælsö Group sem visir.is sagði fyrr í dag að væri í höndum Björgólfs Thor Björgólfssonar er kominn í hendur skiptastjórans í þrotabúi Samson. Viðskipti erlent 3.7.2009 14:36
Svikahrappur olli háu olíuverði Olíuverð náði óvænt hámarki á þessu ári síðastliðinn þriðjudag. Ástæðan er rakin til mikilla kaupa olíumiðlara á svarta gullinu. Viðskipti miðlarans eru talin ólögleg og hafa verið tilkynnt til breskra og bandarískra yfirvalda. Viðskipti erlent 3.7.2009 13:59
Rio Tinto lýkur einni stærstu hlutafjáraukningu sögunnar Námurisinn Rio Tinto, sem m.a. rekur álverið í Straumsvík, lauk í dag við eina stærstu hlutfjáraukningu sögunnar. Alls voru rúmlega 15 milljarðar dollara, eða tæplega 1.900 milljarða kr., í boði og keyptu núverandi hluthafar félagsins í Bretlandi og Ástralíu nær allt þetta magn. Viðskipti erlent 3.7.2009 13:28
Opinber lífeyrissjóður hagnast vel á andláti Jackson Hinn opinberi lífeyrissjóður ABP í Hollandi hagnast nú vel á andláti Michael Jackson því sjóðurinn á réttindin á hluta af lagasafni Jacksons. Viðskipti erlent 3.7.2009 12:48
Danskt félag Björgólfs Thors í miklum vandræðum Eignarhaldsfélagið SG Nord Holding sem er að hálfu í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar er í miklum vandræðum að því er segir í viðskiptablaðinu Börsen. Helsta eign SG Nord Holding er 30% hlutur í fasteignafélaginu Sjælsö Gruppen. Viðskipti erlent 3.7.2009 11:26
Hlutabréf hafa rýrnað um 10.000 milljarða í Kaupmannahöfn Markaðsvirði hlutabréfa í NASDAQ OMX kauphöllinni í Kaupmannahöfn hefur rýrnað um 438 milljarða danskra kr. eða rúmlega 10.000 milljarða kr. á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Viðskipti erlent 3.7.2009 10:55
Gunnar Sigurðsson stjórnarformaður Hamleys eftir uppstokkun Gunnar Sigurðsson fyrrum forstjóri Baugs í Bretlandi var kjörinn stjórnarformaður leikfangaverslunarkeðjunnar Hamleys eftir uppstokkun í stjórninni. Skilanefnd Landsbankans fer nú með 63,7% hlut í Hamleys en sá hlutur var áður í eigu Baugs. Viðskipti erlent 3.7.2009 08:27
Vændishús tapa á kreppunni Enginn í viðskiptaheiminum hefur komist óskaddaður frá fjármálakreppunni sem hófst á síðasta ári. Það á einnig við um klámiðnaðinn en Nevada ríki í Bandaríkjunum er þekkt fyrir sín lögleiddu vændishús. Nú eru karlmenn meira að segja farnir að halda að sér höndum þegar kemur að kynlífi. Viðskipti erlent 2.7.2009 14:50
Sterlingspundið í alvarlegri krísu „Það eru rúmlega 30% líkur á að Sterlingspundið lendi í alvarlegri krísu og líkurnar á verulegum skattaundanskotum og minnkandi einkaneyslu eru nánast 100%“, er haft eftir Niall Ferguson, virtum breskum prófessor í hagsögu, sem lokið hefur prófi frá Harvard háskólanum í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 2.7.2009 11:58