Formúla 1
146 147 148 149 150 151 … 151 ›
Jordan: Schumacher verður goðsögn Eddie Jordan, stofnandi og æðsti yfirmaður Jordan-liðsins í formúlu 1, segir að orðspor Michael Schumcaher í íþróttinni muni aukast til muna á næstum misserum nú þegar hann er hættur að aka. Jordan, sem gaf Schumacher fyrst tækifæri í formúlu 1 árið 1991, telur að Schumacher verði orðinn goðsögn innan fárra ára. Formúla 1 15.1.2007 12:45
Ralf er ekki að hætta Ökuþórinn Ralf Schumacher segir að ekkert sé til í þeim fregnum að hann hyggist hætta í formúlu eftir að núverandi samningur hans við Toyota rennur út eftir næsta tímabil. Schumacher hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við Toyota og við það fóru sögusagnirnar af stað. Formúla 1 14.1.2007 19:30
Toyota frumsýnir nýja bílinn Lið Toyota frumsýndi í dag nýja keppnisbíl liðsins í Formúlu 1 sem fær heitið TF 107. Forráðamenn liðsins notuðu tækifærið og báðust afsökunar á því að liðið næði ekki í sinn fyrsta sigur á síðasta tímabili og lofuðu að úr því yrði bætt á komandi tímabili. Toyota er eina liðið sem verður með sömu ökumenn og í fyrra á næsta ári, þá Ralf Schumacher og Jarno Trulli, og þá er liðið með sömu hjólbarða og sömu vél. Formúla 1 12.1.2007 16:51
Raikkönen ætlar ekki að breyta um stíl Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen segist ekki ætla að breyta um stíl eftir að hann gekk í raðir Ferrari frá McLaren í Formúlu 1, hvorki utan vallar né innan. Raikkönen hefur verið gagnrýndur af Formúlusérfræðingum fyrir að taka ekki nógu vel leiðsögn og fyrir að taka íþróttina ekki nógu alvarlega. Formúla 1 10.1.2007 16:08
Schumacher aðstoðar Raikkönen Vonir forráðamanna Ferrari-liðsins í Formúlu 1 standa til þess að fyrrum heimsmeistrainn margfaldi Michael Schumacher komi finnska ökuþórnum Kimi Raikkönen til aðstoðar á fyrstu mánuðum sínum í Ferrari-bílnum. Raikkönen gekk í raðir Ferrari frá McLaren í sumar. Formúla 1 9.1.2007 15:47
Kovalainen hræðist ekki Alonso Finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen sem leysir Fernando Alonso af hólmi hjá liði Renault í Formúlu 1, segist tilbúinn í að veita heimsmeistaranum góða keppni á næsta tímabili. Alonso keppir fyrir McLaren á næsta tímabili eftir að hafa unnið titil ökuþóra tvö ár í röð hjá Renault. Formúla 1 4.1.2007 18:54
Massa segir Ferrari ekki hafa forskot Felipe Massa, annar ökumanna Ferrari í formúlu 1 kappakstrinum, segir að lið hans muni ekki hafa eins mikið forskot á næsta tímabili eins og margir vilja halda þar sem það hafi reynslu síðustu ára af dekkjum frá Bridgestone. Flest önnur lið formúlunnar hafa notað Michelin en þurfa að snúa sér að Bridgestone eftir að fyrrnefnda fyrirtækið hætti að framleiða dekk fyrir formúluna. Formúla 1 29.12.2006 21:15
Alonso á sér nafna í Bretlandi Breskur íþróttaáhugamaður borgaði í síðustu viku 200 dollara til að breyta nafni sínu í Fernando Alonso, samkvæmt enska dagblaðinu Mirror. Maðurinn, sem áður hét David Fuller, heitir nú Fernando Alonso Rodney Trotter Ronaldinho. Formúla 1 29.12.2006 16:15
Button: Ég er sami ökumaður og áður Ökuþórinn Jenson Button hjá Honda í formúlu 1 segir að fyrsti sigur hans á ferlinum, sem hann náði í Ungverjalandi á síðasta tímabili, hafi ekki breytt stíl hans sem ökumanni. Á þeim sjö mótum sem eftir voru af tímabilinu hafnaði Button ávallt í efstu fimm sætunum. Formúla 1 28.12.2006 19:53
Fisichella óánægður með nýju dekkin Lið í formúlu 1 þurfa að gera breytingar á bremsubúnaði bíla sinna ef ökumenn þeirra eiga að geta ráðið við nýju Bridgestone-dekkinn, sem gerð eru úr nýrri tegund af gúmmí en áður hefur verið notast við. Þetta segir Giancarlo Fisichella hjá Renault. Formúla 1 26.12.2006 09:15
Schumacher í fullri vinnu hjá Ferrari Michael Scumacher er vissulega hættur að aka fyrir Ferrari-liðið í formúlunni en honum er engu að síður ætlað stórt hlutverk hjá liðinu á næsta ári. Nú hefur verið tilkynnt að Schumacher mun verða helsti ráðgjafi liðsins í þróun keppnisbílsins og einnig þróun hina “hefðbundnu” Ferrari-bíla. Formúla 1 25.12.2006 19:30
Alonso mjög fljótur á fyrstu æfingu Ónefndur bifvélaverki úr herbúðum McLaren segir að Spánverjinn Fernando Alonso hafi litið mjög vel út á sinni fyrstu æfingu á nýjum bíl. Hinn tvöfaldi heimsmeistari yfirgaf herbúðir Renault í sumar og mun keppa fyrir McLaren á næsta tímabili. Formúla 1 22.12.2006 19:15
Button er einn af þremur bestu ökumönnunum Nick Fry, liðsstjóri Honda í Formúlu 1, segir að breski ökuþórinn Jenson Button sé einn af þremur bestu ökumönnunum heimsins í dag ásamt þeim Kimi Raikkönen og heimsmeistaranum Fernando Alonso. Formúla 1 14.12.2006 19:30
Vilja að Raikkönen skáli fyrir luktum dyrum Jean Todt, yfirmaður Ferrari liðsins í Formúlu 1, segist ekki hafa neinar áhyggjur af drykkjuvenjum finnska ökuþórsins Kimi Raikkönen sem gengur í raðir liðsins - svo fremi sem hann skáli fyrir luktum dyrum. Formúla 1 12.12.2006 21:40
Renault ætlar ekki að sleppa Alonso Flavio Briatore, liðsstjóri Renault í Formúlu 1, segir ekki koma til greina að liðið leyfi heimsmeistaranum Fernando Alonso að losna undan samningi sínum við liðið fyrr en um leið og hann rennur út um áramótin. Litlir kærleikar eru milli forráðamanna Renault og McLaren, en Alonso gengur til liðs við McLaren um áramót. Formúla 1 12.12.2006 21:30
McLaren vill fá Alonso strax Forráðamenn McLaren í Formúlu 1 ætla að fara þess á leit við kollega sína hjá Renault að þeir leysi heimsmeistarann Fernando Alonso undan samningi nokkrum vikum fyrr en áætlað var svo hann geti hafið prófanir strax með nýja liðinu sínu. Formúla 1 6.12.2006 20:51
Raikkönen tekjuhæstur á næsta ári Þó Michael Schumacher hafi lagt stýrið á hilluna verður tekjuhæsti ökumaðurinn í Formúlu 1 áfram í röðum Ferrari-liðsins. Schumacher er sagður fá yfir 700 milljónir króna á næsta ári þó hann sé hættur að keppa, en arftaki hans hjá Ferrari, Kimi Raikkönen, er nú orðinn tekjuhæsti ökumaðurinn. Formúla 1 5.12.2006 15:39
Hakkinen útilokar ekki frekari akstur Fyrrum heimsmeistarinn Mika Hakkinen frá Finnlandi útilokar ekki að hann muni aðstoða McLaren liðið frekar með tilraunaakstri en hann ók nokkra hringi fyrir liðið í vikunni. Formúla 1 1.12.2006 18:00
Formúla 1 er ekkert barnaafmæli Michael Schumacher segist ekki hafa hlotið neina sérmeðferð þau ár sem hann var ökumaður númer eitt hjá Ferrari eins og margir hafa meinað, heldur segist hann hafa unnið fyrir því með því að vera einfaldlega fljótari en félagi sinn hverju sinni. Formúla 1 28.11.2006 21:16
McLaren er að eyðileggja feril Hamilton David Coulthard, ökumaður Red Bull í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður McLaren, segir að Ron Dennis og félagar hjá McLaren séu mjög líklega að eyðileggja feril hins efnilega Breta Lewis Hamilton með því að gera hann að aðalökumanni of snemma. Formúla 1 27.11.2006 14:45
Lewis Hamilton ekur fyrir McLaren Hinn 21 árs gamli Lewis Hamilton verður liðsfélagi heimsmeistarans Fernando Alonso hjá keppnisliði McLaren á næsta ári. Þetta var tilkynnt í dag og er Bretinn fyrsti þeldökki ökumaðurinn sem keppir í Formúlu 1. Hamilton hefur verið hjá McLaren til reynslu frá árinu 1998. Formúla 1 24.11.2006 13:36
Schumacher útilokar endurkomu Þýski ökuþórinn Michael Schumacher gaf það út í viðtali við þýska fjölmiðla að það væri enginn möguleiki á því að hann settist undir stýri í Formúlu 1 á ný, því það væri einfaldlega ekki hægt eins og íþróttin hafi þróast síðustu ár. Formúla 1 23.11.2006 16:04
Schumacher hefur ekki áhyggjur af framtíðinni Ævisaga Michael Schumacher kemur í bókahillur á næstu dögum og ber einfaldlega heitið "Schumacher". Sjöfaldur heimsmeistarinn segist ekki óttast aðgerðaleysi í framtíðinni þó hann sé hættur að keppa og flestir reikna með að hann setjist við hlið Jean Todt hjá Ferrari og sinni starfi ráðgjafa liðsins. Formúla 1 22.11.2006 14:57
Montoya ók á vegg Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Montoya, sem áður ók með McLaren í Formúlu 1, slapp ómeiddur á sunnudaginn þegar hann ók Nascar-bíl sínum á vegg í keppni í Miami. Jimmy Johnson tryggði sér meistaratitilinn með því að hafna í 9. sæti í keppninni og hafði betur í einvígi sínu við Matt Kenseth. Formúla 1 21.11.2006 17:45
Mosley segir of mörg mót í Evrópu Max Mosley, forseti Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, segir að fjölga verði mótum í Formúlu 1 í allt að 20 ef keppni verði ekki hætt í fleiri mótum Evrópu. Mosley segir of mörg mót vera haldin í Evrópu og segir restina af heimsbyggðinni þurfa að fá stærri sneið af kökunni. Formúla 1 16.11.2006 18:01
Mika Hakkinen ekur ekki fyrir McLaren Forráðamenn McLaren-liðsins í Formúlu 1 hafa neitað því að liðið sé að reyna að lokka fyrrum heimsmeistarann Mika Hakkinen aftur til keppni til að aka við hlið heimsmeistarans Fernando Alonso á næsta tímabili. Formúla 1 16.11.2006 17:18
Klien ekur hjá Honda Austurríkismaðurinn Christian Klien verður vara- og æfingaökumaður Honda-liðsins í Formúlu 1 á næsta tímabili samkvæmt fréttatilkynningu frá liðinu í dag. Klien ók með Jaguar árið 2004 og ók fyrir Red Bull á síðasta ári. Hann verður varaökumaður fyrir þá Jenson Button og Rubens Barrichello hjá enska liðinu á næsta keppnistímabili. Klien leysir Anthony Davidson af hómi, en sá fékk sæti í liði Super Aguri í gær. Formúla 1 16.11.2006 17:14
Davidson ekur fyrir Super Aguri Breski ökuþórinn Anthony Davidson verður ökumaður japanska Super Aguri liðsins í Formúlu 1 á næsta ári ásamt Takuma Sato. Davidson hefur verið æfingaökumaður fyrir BAR/Honda síðustu þrjú ár, en fær nú tækifæri til að reyna sig fyrir alvöru á meðal þeirra bestu. Hann á að baki tvær keppnir sem aðalökumaður með liði Minardi árið 2002 og eina með Honda á síðasta tímabili. Formúla 1 15.11.2006 16:56
McLaren bílarnir verða í speglinum hjá mér á næsta ári Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen, sem nú er genginn í raðir Ferrari þar sem honum verður ætlað að fylla skarð Michael Schumacher, segir að samningur hans við liðið verði hugsanlega síðasti samningurinn sem hann skrifar undir á ferlinum. Formúla 1 14.11.2006 17:30
Ecclestone veldur titringi á Silverstone Formúlumógúlnum Bernie Ecclestone er ekkert heilagt þegar kemur að því að auka veg og virðingu íþróttarinnar og nú hefur hann valdið mótshöldurum breska kappakstursins á Silverstone hugarangri með framtíðaráformum sínum. Formúla 1 9.11.2006 20:34