Eldgos og jarðhræringar
126 127 128 129 130 131 132 … 132 ›
Hátt í 50 manns í Þórsmörk Um 45 manns eru staddir í Langadal og eru þeir allir sofandi, segir Broddi Hilmarsson hjá Ferðafélagi Íslands. Af þeim eru 30 manns frá Ferðafélaginu. Innlent 14.4.2010 03:31
Lokað á milli Hvolsvallar og Skóga Lögregla hefur lokað veginum frá Hvolsvelli að Skógum vegna jarðskjálftahrinunnar í Eyjafjallajökli. Ef gos hefst undir jökli má búast við hlaupi í Markarfljóti. Innlent 14.4.2010 03:07
Vara við brennisteinsmengun við gosstöðvarnar Lögreglan á Hvolsvelli vill vekja á því athygli að töluverða brennisteinsmengun leggur frá gosstöðvunum við Fimmvörðuháls, ennfremur er hætta á að eiturgas leggi frá nýrunnu hrauninu. Innlent 13.4.2010 19:09
Rýmingu að ljúka Rýmingu er að ljúka milli Hvolsvallar og Skóga. Svæðinu þar á milli er algerlega lokað. Innlent 14.4.2010 02:37
Aldrei auðveldara aðgengi að eldgosi Ásókn almennings í skoðunarferðir á slóðir eldgoss hefur aldrei verið meiri en að gosinu sem hófst á Fimmvörðuhálsi 20. mars síðastliðinn. Þetta skýrist einna helst af eðli gossins og betra aðgengi en áður hefur þekkst, að mati Ármanns Höskuldssonar eldfjallafræðings. Hann hefur fylgst með nokkrum eldgosum á Íslandi en man ekki eftir annarri eins umferð í Innlent 8.4.2010 22:27
Hætt að gjósa úr fyrstu sprungunni Fyrsti gígurinn sem myndaðist á Fimmvörðuhálsi er hættur að gjósa. Áfram gýs á fullum krafti úr sprungunni sem opnaðist í síðustu viku. Þessar breytingar sá hópur vísindamanna sem skoðaði eldstöðvarnar í dag. Innlent 7.4.2010 19:20
Um milljón manns frá 150 löndum hafa skoðað eldgosið í beinni Um milljón manns frá 150 löndum hafa skoðað eldgosið á Eyjafjallajökli á heimasíðu Mílu frá því fyrsta myndavélin var sett upp á Hvolsvelli í síðasta mánuði. Í kringum 62% heimsóknanna koma frá Íslandi en það þýðir jafnframt að um 38% heimsókna koma erlendis frá. „Trúlegast er um Íslandsmet í heimsóknum á heimasíðu að ræða og eru vinsældir síðunnar hreint ótrúlegar," segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Innlent 7.4.2010 16:14
Veðurstofan sagði að rólegra væri undir Eyjafjallajökli Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis fékk þær upplýsingar frá Veðurstofunni laust fyrir klukkan fimm á gosdaginn, þann 20. mars, að heldur rólegra væri undir Eyjafjallajökli en hefði þá verið undanfarna daga. Engu að síður væri unnið eftir áætlunum um óvissustig á svæðinu vegna mögulegs eldgoss. Innlent 30.3.2010 14:23
Veðurstofan varaði Almannavarnir við hálfum degi fyrir upphaf goss Veðurstofan tilkynnti Almannavörnum hálfum sólarhring fyrir upphaf eldgossins á Fimmvörðuhálsi um verulega grynnri skjálftavirkni í Eyjafjallajökli, sem benti til að kvikan væri á uppleið. Ekki var talin ástæða til sérstakra viðbragða enda var þá þegar búið að lýsa yfir óvissustigi. Innlent 30.3.2010 12:03
Ólíklegt að það gjósi víðar við Eyjafjallajökul Litlar líkur eru á því að eldgos verði annarsstaðar við Eyjafjallajökul, segir almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Þetta var niðurstaða fundar almannavarnanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu með almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og vísindamönnum í gær. Eyjafjallajökull verður áfram lokaður fyrir umferð. Innlent 30.3.2010 09:57
Enn finnst fólk í hrakningum á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitarmenn á Fimmvörðuhálsi fundu enn kalda og hrakta göngumenn á slóðum eldgossins seint í gærkvöldi eftir að myrkur var skollið á. Þeir leituðu af sér allan grun um fleiri, sem þannig væri ástatt um Innlent 30.3.2010 06:44
Gosið í beinni hjá Mílu Míla fór á dögunum og setti upp vefmyndavélar á Þórólfsfelli og á Fimmvörðuhálsi þannig hægt er að skoða gosið úr stofunni heima. Vefmyndavélarnar má finna hér. Innlent 27.3.2010 19:00
400 fóru fótgangandi að gosinu í morgun Lögreglan á Hvolsvelli telur að um 400 manns hafi lagt af stað upp Fimmvörðuhálsinn fótgangandi í morgun. Um er að ræða marga hópa ásamt leiðsögumönnum. Innlent 27.3.2010 14:03
Töluverður gosórói í nótt Nokkuð jafn gangur virðist hafa verið í gosinu á Fimmvörðuhálsi í alla nótt samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum. Innlent 27.3.2010 09:21
Gosið að kvöldlagi - myndir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins tók meðfylgjandi myndir á Fimmvörðuhálsi um klukkan níu í gær. Vilhelm fékk far með þyrlu upp á hálsinn en gekk svo til baka. Eldgosið er ekki síður mikilfenglegt að kvöldlagi en í dagsbirtu eins og sjá má. Innlent 25.3.2010 13:08
Ljónið er fast úti í Hrísey í einangrun Sirkus Ísland sýnir í Salnum í Kópavogi. Fyrsta sýning er á sunnudaginn og svo á að sýna í dymbilvikunni og um páskana, samtals ellefu sýningar. Sýningin er kölluð Sirkus Sóley. Lífið 24.3.2010 22:30
Gufustrókar hækka í 12.000 fet í logninu Gufustrókar úr eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi hækkuðu verulega þegar líða tók á daginn í gær og vind lægði. Innlent 24.3.2010 22:32
Ferðamenn vilja sjá náttúru Þegar eldgos kemst í erlendar fréttir dregur það athygli að óspilltri íslenskri náttúru. Það eykur á spennuna fyrir þessu sérkennilega landi. Allt slíkt hjálpar til þess að fá hingað ferðamenn, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair. Innlent 24.3.2010 22:32
Gos ekki hafið á nýjum stað - mikil gufa orsakar bjarma Fjölmargir hafa haft samband við fréttastofu í kvöld og talið að eldgos væri hafið á nýjum stað í grennd við gossprunguna á Fimmvörðuhálsi. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir svo ekki vera. Innlent 24.3.2010 22:02
Almenningi áfram bannað að nálgast eldstöðina Eyjafjallajökull er enn að þenjast út og meðan svo er verður fólki áfram bannað að nálgast gosstöðvarnar, segir sýslumaður Rangæinga og yfirmaður almannavarna á svæðinu. Yfirvöld eru þó að skoða hvort unnt sé að veita almenningi betri aðgang að svæðinu. Innlent 24.3.2010 19:33
Hraunfossinn stórkostlegt náttúrufyrirbæri Stórfenglegt náttúrufyrirbæri, glóandi hraunfoss, um tvöhundruð metra hár, sést nú á eldsstöðvunum í Eyjafjallajökli þegar hrauneðjan steypist niður í hið hrikalega Hrunagil við Heljarkamb. Innlent 24.3.2010 18:45
Þrýstingurinn hefur ekki minnkað - enn hætta á að gosið fari undir jökul Almannavarnanefnd Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu fundaði í dag með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og vísindamönnum um eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Innlent 24.3.2010 18:12
Þingmenn skoða gosið Þingmenn Suðurkjördæmis eru að fara upp á Fimmvörðuháls að skoða eldgosið í Eyjafjallajökli. Fjölmargir hafa farið þangað í dag en Landsbjörg býst við því að margir muni fara að skoða gosið næstu daga og um helgina. Innlent 24.3.2010 13:45
Vísindamenn komnir að eldstöðinni Vísindamenn komust fyrir stundu upp að gosinu á Fimmvörðuhálsi og eru nú að taka sýni. Óróinn undir gosstöðvunum var heldur meiri í nótt en í gærdag þannig að gosvirknin er ekki að minnka. Innlent 24.3.2010 07:56
Vefmyndavélar vakta eldfjallið Fjarskiptafyrirtækið Míla hefur sett upp tvær myndbandstökuvélar í nánd við gossvæðið á Fimmvörðuhálsi og opnað fyrir beina útsendingu í gegnum vefsíðu fyrirtækisins. Innlent 23.3.2010 22:59
Eyjafjallajökull bólgnar enn út Kvika streymir enn inn undir Eyjafjallajökul og fjallið bólgnar enn út. Eldfjallafræðingur telur að gosið muni standa í einhverjar vikur. Innlent 23.3.2010 18:57
Um tugur jarðskjálfta undir Eyjafjallajökli Um tugur jarðskjálfta hafa mælst undir Eyjafjallajökli frá miðnætti en þeir hafa allir verið minni en 2 að stærð. Almannavarnanefnd lögreglustjórans á Hvolsvelli fundar með Vísindamönnum kukkan fjögur í dag. Ekkert hefur verið flogið yfir eldstöðarnar í dag vegna veðurs. Innlent 23.3.2010 15:53
Vilja hleypa ferðamönnum að gosinu „Það gengur vel, núna erum við að skoða aðgengi ferðmanna að svæðinu og hvernig má gera það betra,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna, en stefnt er að því að hleypa ferðamönnum nálægt gosinu til þess að skoða það. Ef öryggið verður tryggt þá er það mögulegt að sögn Víðis. Innlent 23.3.2010 10:27
Eldgosið eyðilagði heimsmetstilraun Eldgosið við Fimmvörðuháls eyðilagði aðra af tveimur heimsmetstilraunum svissneska flugmannsins Riccardo Mortara. Mortara hugðist slá met ævintýramannsins Steves Fossett með því að fljúga hringinn í kringum hnöttinn á innan við 67 klukkustundum. Lífið 22.3.2010 21:26
Buguðu foreldrarnir Um daginn var frétt í þessu ágæta blaði um konu sem var gífurlega ósátt við að komast ekki með níu mánaða barn sitt á háværa teknóglaða Latabæjarhátíð nema að borga miðann fullu verði. Þessi frétt leiddi huga minn að þeirri algengu tilhneigingu íslenskra foreldra til að fara með kornung börn út um allar trissur vegna einhvers konar skandinavískrar hippafílósófíu þar sem börnin eiga að ráða öllu. Þessi tilhneiging er stundum einkar óviðeigandi og bæði tillitslaus við stórt fólk og smátt. Bakþankar 22.3.2010 17:33